Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1956, Page 13

Kirkjuritið - 01.10.1956, Page 13
HÁTÍÐ AÐ HÓLUM í HJALTADAL 355 Vér þörfnumst þjóðarvakningar sem á dögum Jóns Ogmunds- sonar. Verum minnugir leiðtoga vorra og líkjum eftir trú þeirra. Leitumst við að fara að dæmi Jóns Ögmundssonar í því, er mestu varðar, hvert og eitt. Enginn getur unnið að þjóðarvakningu, nema hún rísi einnig í hans eigin hjarta. Þráum vér ekki nú vakn- ingu, þjóðlega, heilbrigða, víðfeðma, umburðarlynda, kærleiks- ríka, Jjar sem bróðir styður bróður, þótt skoðanir kunni að vera skiptar — þráum gróður, er breiðist út víðar og víðar, einnig um öræfi og eyðisanda? Fer ekki hrifning um hugina við kirkju- hátíðir vorar á J)essu sumri, bæði í Skálholti og að Hólum? Og verður ekki söngurinn til J)ess að lvfta henni hærra og hærra? Aldrei síðan á dögum Jóns Ögmundssonar hefir verið gjörð þróttmeiri tilraun en nú á seinustu árum að efla og fegra kirkju- söng vorn. Þessi hátíð er söngsins hátíð, eins og vera ber. Kirkj- an ómi öll. Frá heilögum söng stafi helgandi kraftur. Hann sam- eini jörð og himin. Já, líkjum eftir trú Jóns Ögmundssonar. Breiðum út gróðurinn og lífið. Látum Hóla verða sein fegurstan gróðurlund — unaðs- legan hluta af ríki Guðs. Ef fyrst er leitað Guðs ríkis, mun allt annað veitast að auki. Komi Jesú kærleiksríki. Korni glaða-sól. Náðin Guðs hin nýja vígi nýjan Hólastól. Það er sagt um Jón Ögmundsson, að hann hafi verið bráðlátur. Svo var einnig frumkristnin. Hún bað ekki aðeins: Kom Jni drott- inn Jesú, heldur bætti við: Kom brátt. Eitthvert sinn voraði mjög seint, svo að jörð var ekki í gróðri að fardögum. Hét J)á Jón biskup til árbótar mönnum á Jónsmessu, og er hann hafði sagt fyrir með heitum og staðfest með heilögu bænahaldi, mælti hann J)essum orðum: „Þat vilda eg, at Guð gæfi oss nú J)egar döggina.“ Þaðan frá um sumarið var regn um nætur, en sólskin um daga. Góður Guð veki oss sumar andans, svo að hér verði gróandi þjóðlíf — ísland vaxið skógi milli fjalls og fjöru. Já, hann gefi oss J)egar döggina í Jesú nafni. Amen.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.