Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1956, Blaðsíða 46

Kirkjuritið - 01.10.1956, Blaðsíða 46
388 KIRKJURITIÐ nokkru sinni hafi orðið árekstrar mOli okkar. Sennilega sakir þess, hve hann var innilega trúaður og einlæglega kristinn. Hann virtist ævinlega taka mest tOlit til andlegra sjónarmiða. Lundúnir hafa mist góðan borgara og vitran leiðtoga við fráfall hans, mann, sem með sinni ríku samúð kriddaði og bætti hversdagslíf okkar allra.“ lvar Stanley Watkins fyrrum aðstoðarbiskup í Malmesbury hefir ver- ið skipaður biskup í Guildford á Englandi. Mikil blaðaskrif urðu um vændi í Lundúnum á þessu sumri. Þykir það hafa færzt ískyggilega í aukana á síðustu árum, og vera nú orðið næsta tekjumikil ,,atvinnugrein“ bæði hvítra þrælasala innlendra og erlendra og sumra vændiskvennanna. Þetta hefir vakið óhug og andúð meðal almenn- ings, en stjómarvöldin fara sér enn hægt í að grípa í taumana. Samt er talið að rnálið verði trauðla þagað i hel, enda voði á ferðum fyrir þjóðarsómann og hina uppvaxandi kynslóð. Miðstjórn alkirkjuráðsins hélt fyrsta fund sinn „austan jámtjalds- ins“ í byrjun ágúst sl. Fundarstaðurinn var Buda-Pest og segja fundar- menn, að þeim hafi verið innilega fagnað, bæði af prestum og almenningi þar í borg. Guðþjónustur voru mjög fjölsóttar og Beroczky biskup fonnaður almennu kirkjunefndarinnar í Ungverjalandi lét þá ósk i ljósi, að fundurinn ætti nokkurn þátt í því að skapa það heimsástand, að menn lifðu hlið við hlið í „opnum þjóðfélögum“ og deildu í æ rikari mæli andlegum, menn- ingarlegum og efnalegum verðmætum." — Því var lýst yfir á fundinuni 1 nafni ungverskra vfirvalda að Lajos Ordass biskupi yrði sleppt úr haldi, og myndi hann sennilega fá á ný kennimannleg réttindi. — Það kom og fram að bæði rússneska rétttrúarkirkjan og kínverska kirkjan æsktu eftir að taka þátt í alkirkjuráðinu. Er þar um rnikla og gleðilega stefnubreyt- ingu að ræða, sem styrkir mjög aðstöðu alkirkjuráðsins, og gerir það miklu réttnefndara en áður hefur verið. Skortir þó mikið á þar sem rom- verska kirkjan stendur enn utan þess. Margt bendir þó til þess, að þratt fyrir allt fari sá skilningur vaxandi í austri og vestri, að heimurinn geti ekki án kristindómsins verið, og að hlutverk kirkjunnar muni aukast á komandi árum, af því að hún boðar hið sanna bræðralag. Sonur John Fosters Dulles utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur ny- lega tekið kaþólska prestsvígslu. Hefir þetta vakið nokkra athygli m. a. sakir þess, að foreldrarnir eru heittrúaðir öldungakirkjumenn. Þessi nýi prestur

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.