Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1956, Blaðsíða 41

Kirkjuritið - 01.10.1956, Blaðsíða 41
WALKER ORGELSMTÐJURNAR 383. rúmum 300 árum. Það er eins konar brennipunktur hinnar nýju, þýzku orgelhreyfingar, er hófst upp úr fyrri heimsstyrjöldinni. Af öðrum frægum Walckers orgelum skulu fáein nefnd: í Pálskirkju, Frankfurt a.M., 3 hljómborð, 2 fótspil, 74 raddir (1833).. í Michaeliskirkju, Hamborg, 5 hljómborð, 2 fótspil, 165 raddir (1912).. (22 raddir þess orgels eru byggðar í háhvelfing kirkjunnar og hljóma „eins. og englasöngur af hæðum"). I Kongresshöllinnni í Nurnberg, 220 raddir, (1936). Það er stærsta orgel álfunnar. Utan Þýzkalands hljóma nú yfir 1200 Walckers-orgel í kirkjum, trúboðs- stöðvum og sönghöllum í yfir 60 iönduin i öllum heimsálfum. Nefna má: „Bla Hallen“ i Stokkhólmi, Rikishöllina í Barcelona (byggt fyrir heims- sýninguna 1929 og hlaut þar „Grand Prix“), dómkirkjur í Osló, Vínarborg, Rlga, Moskva, Cork (írlandi), Ilelsingfors, Neapel, Rotterdam, Boston, Péturskirkjuna í Róm, o. fl. o. fl. Arið 1949 hefst nýr þáttur í starfsemi Walckers, en það er smíði smá- orgela i stórum stíl eftir föstum gerðum (standard dispótionir). Þessi orgel hafa náð miklum vinsældum, og framleiðsla þeirra fer ört vaxandi, enda eru þau hvort tveggja i senn, vönduð og ódýr. Smá-orgelin hafa 3 til 11 raddir. Eitt nýjasta stórvirki Walkers var bvgging nýs orgels í ráðhúsið í Inns- bruck, sem var vígt með mikilli viðhöfn á þessu ári. Hingað til lands eru nú komin nokkur orgel frá Walcker: í Hafnarfjarðar- hirkju 1955, 30 raddir, sérstætt og mjög fullkomið, og í Laugarneskirkju 1 Reykjavík, 19 raddir, mjög vandað orgel, sem sett var upp á þessu sumri. Auk þeirra eru komin smá-orgel í Fríkirkjuna í Hafnarfirði, 10 raddir og Kópavogsskóla, 6 raddir, og fleiri eru væntanleg. V’alekers smiðjurnar hafa nú starfað að orgelbyggingum í 175 ár og yfir 100 ára skeið hafa þær, eins og fyrr segir, haft frumkvæði að flestum nyjunguin og forystu í endurbótum á sviði orgelsmíða. ^ onandi auðnast þeim enn um langan aldur að leggja sinn stóra skerf f'f 'iðhalds kirkjusöngs, trúar- og tónlistarlífi. Hafnarfirði, 2. sept. 1956. P. K. P.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.