Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1956, Side 14

Kirkjuritið - 01.10.1956, Side 14
Prestafundur Norðurlanda haldinn í Reykjavík dagana 2.—6. ágúst 1956 Á undanfömum árum hafa prestafélög Norðurlanda efnt til sameiginlegs fundar 3ja hvert ár. Á slíkum fundi fvrir þrem árum höfðu íslenzku fulltrúarnir boðið, að næsti fundur vrði haldinn á íslandi, og var það síðan ákveðið. En áður höfðu fundirnir verið haldnir til skiptis á hinum Norðurlöndunum, en aldrei hér á landi: Á undirbúningsfundi í Svíþjóð á fyrra ári var í höfuð- dráttum gengið frá dagskrá þessa fundar, en nánari tilhögun og allan undirbúning hér annaðist stjórn Prestafélag íslands. Hafði hún látið prenta dálítinn bækling með dagskrá fundarins á dönsku, messuformi setningarguðsþjónustu, sálmum á íslenzku og dönsku, lista yfir þátttakendur o. s. frv. Formálsorð ritaði Ás- mundur Guðnmndsson biskup. Háskólinn var fenginn að fnndar- stað. Þar var undirbúin sýning guðfræðilegra og kristilegra bók- mennta íslenzkra frá seinni árum. Auk þess barst allstór send- ing af bókum sama efnis frá Svíþjóð. Á skrifstofu Háskólans skyldi vera upplýsingaskrifstofa fund- arins og í Háskólanum var undirbúin sala á kortum og frímerkj- um o. fl. á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins. Miklu fleiri erlendir gestir höfðu tilkynnt þátttöku en komist gátu. Norska skipið Brand VI. hafði verið tekið á leigu til far- arinnar, en með ]nf gátu ekki komist nema 150 farþegar. En uni 20 þátttakendur komu á annan hátt. Urðu erlendu gestirnir því um 170, þar af nær 50 konur, aðallega prestskonur. Þeir, sem með skipinu komu, bjuggu í því meðan á fundinum stóð. Öðruin hafði verið komið fyrir á Hótel Garði og á einkaheimilum. Skráð- ir íslenzkir þátttakendur voru um 100 — prestar og prestskonur. Fyrstu erlendu gestirnir komu með skipi 26. júlí og svo nokkr- ir með flugvélum næstu daga. En Brandur VI. kom á Reykjavík-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.