Kirkjuritið - 01.10.1956, Page 49
INNLENDAR FRETTIR
391
að hafa rit þessi á boðstólum. — Þetta er mjög þakkarvert og þýðingar-
mikið fordæmi, sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Má telja víst, að það
hafi mikil áhrif. Vestfirzk og austfirzk kvennasambönd og einnig Kven-
félagasamband Vestur-Húnvetninga hafa lika mótmælt útgáfu og sölu áð-
urnefndra rita og skorað á stjómarvöldin að hefta það. Vonandi fer skiln-
ingur mæðranna sívaxandi á þeirri hættu, sem börnum þeirra stafar af þessu
gróðabralli einstakra manna. Og er þess líka að vænta, að almenningsálitið
kveði þennan ósóma fljótlega niður.
Kaupangskirkja í Eyjafirði.
Undanfarandi ár hefir farið fram gagn-
gerð endurbót á Kaupangskirkju i Eyja-
firði, sem unnið hefir verið að með mikl-
um áhuga og myndarskap af söfnuðinum.
Er nú þessu verki að mestu leyti lokið.
Kirkjan hefir verið máluð utan og inn-
an á einkar smekklegan hátt, og hefir
Barði Brynjólfsson málarameistari á Ak-
ureyri leyst það verk farkunnarvel af
höndum. Hvelfing kirkjunnar er máluð
blá með gylltum stjömum í reitum, og
framan á kórbogann er skráð með gotn-
esku letri: Dýrð sé guði t upphæðum.
Veggir eru hvítir, en gólfið rauðbrúnt,
kirkjubekkimir í rauðum mahónílit. Gólf-
ið innan við altarisgrindur er klætt rauðri
ábreiðu og dregill eftir kirkjugangi í sama
ht. í kirkjuna hefir verið settur mjög
smekklegur Ijósaútbúnaður, tvær fagrar
lafljósakrónur úr hvelfingu og níu vegg-
Ijós með tveimur álmum. Þrjátíu og þrjár
mislitar ljósaperur prýða kórhvelfinguna. Gluggar á stöfnum liafa verið
tvöfaldaðir og sett í þá mislitt gler og verða hliðargluggar sennilega endur-
uýjaðir á líkan hátt, áður en langt um líður, og fleiri smærri umbætur liafa
verið gerðar. Góðar gjafir hafa kirkjunni borizt í sambandi við þessa við-
gerð: Tvö þúsund krónur frá vini kirkjunnar, sem ekki vill láta nafns síns
getið, 500 kr. frá bandariskum hjónum, sem gefin vom saman í kirkjunni,
°g loks hafa systkinin frá Fífilgerði gefið mikinn skírnarfont úr marmara-
steypu til minningar um foreldra sína: Rögnvald Sigurðsson og Lovísu