Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1959, Blaðsíða 2

Kirkjuritið - 01.01.1959, Blaðsíða 2
H.f. Eimskipafjelag ísiands. r AÐALFUNDUR Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík laugar- daginn 6. júní 1959 og hefst kl. 1,30 eftir hádegi. 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári og frá starfstilhöguninni á yfirstand- andi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1958 og efnahagsreikning með athugasemdum endur- skoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úr- skurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt- ingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt samþykktum félags- ins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins (ef til- lögur koma fram). 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík dagana 2.—4. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavik. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrán- ingar, ef unnt er, viku fyrir fundinn. Reykjavík, 13. janúar 1959. Stjórnin.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.