Kirkjuritið - 01.01.1959, Blaðsíða 21
KIRKJURITIÐ
15
2. Útgáfustarfsemi.
NauSsyn er á að gefa út sérprentanir af ýmsum lögum og
reglugerðum, er varða störf presta og sóknarnefnda, leið-
beiningar til presta um sunnudagaskólahald og æskulýðs-
starfsemi og ýms nauðsynleg hjálpargögn við þá starfsemi.
Ennfremur gæti verið vel til fallið, að kirkjan gæfi við og
við út úrvals erindi um andleg mál til útbýtingar meðal
safnaða og presta, svo sem mjög tíðkast víða erlendis.
3. Æskulýösfélög og unglingastarf.
Brýn þörf er á því að efla þá starfsemi í söfnuðum lands-
ins, bæði með því að senda erindreka til þess að aðstoða
presta í því að koma slíku starfi á fót og eins með hinu að
veita þess háttar félögum nokkurn starfsstyrk í hlutfalli
við framlög safnaðanna sjálfra.
Mörg önnur verkefni liggja fyrir og ný skapast eftir því sem
stundir líða.
Kirkjan hefir þegar gengizt fyrir sumarnámskeiðum á Löngu-
mýri í Skagafirði og mótum fyrir fermingarbörn víðs vegar um
landið. Hefir hún til þess notið styrks á fjárlögum, sem vænt-
anlega mun haldast framvegis, enda þeim styrk öllum verið
varið til þessa starfs eingöngu.
Málinu var vísað til kirkjumálanefndar, er mælti með því ein-
róma. En þingið samþykkti í einu hljóði.
VIII. Tillaga til þingsályktunar um breytt fyrirkomulag á
greiöslum fyrir aukaverk presta, flutt af Steingrími Benedikts-
syni og Sigurði Gunnarssyni:
Kirkjuþingið ályktar að beina til Alþingis tilmælum um, að
úr gildi verði numin heimild presta til að taka sérstakar greiðsl-
ur fyrir svo nefnd ,,aukaverk“, önnur en umbeðnar ræður við
jarðarfarir og hjónavígslur.
Hins vegar heimili löggjafarvaldið hækkun á sóknargjöldum
um kr. 5,00 á hvern safnaðarmeðlim, að viðbættri vísitölu, og
greiði fjárhaldsmaður safnaðar það til hlutaðeigandi sóknar-
prests. Þar, sem tveir prestar þjóna sama söfnuði, skiptist
greiðslan jafnt á milli þeirra.
Greinargerö.
Aukatekjur presta hljóta að vera mjög misjafnar eftir tölu
safnaðarmeðlima, en með núgildandi fyrirkomulagi á innheimtu