Kirkjuritið - 01.01.1959, Blaðsíða 20
14
IÍIRKJURITIÐ
þessu máli ekki ráðið til lykta á fullnægjandi hátt, fyrr en lög-
fest er þátttaka ríkissjóðs í kostnaði við kirkjubyggingar eins
og gert er ráð fyrir í frumvarpi, sem fylgir 3. máli Kirkju-
þingsins.
Tillagan var samþykkt af þinginu einróma.
VI. Áskorun um aö stofnaö veröi til verölaunasamke'ppni um
uppdrœtti aö sveitakirkjum, lögð fram af Ásmundi Guðmunds-
syni.
Kirkjuþingið beinir þeim tilmælum til kirkjustjórnarinnar,
að hún láti í samráði við húsameistara ríkisins efna til verð-
launasamkeppni um uppdrætti að sveitakirkjum, er samsvari
sem bezt íslenzkum staðháttum. Nái sú samkeppni bæði til húss-
ins og skreytingar utan og innan.
Málinu var vísað til allsherjarnefndar, er skilaði svo hljóð-
andi áliti:
Nefndin hefir athugað málið á nokkrum fundum, og telur
það mjög mikilsvert, en ekki nægilega undirbúið til sam-
þykktar nú.
Ber nefndin því fram svofellda rökstudda dagskrá:
Þar eð málið, sem í sjálfu sér er mikilvægt, þykir ekki nógu
vel undirbúið til afgreiðslu um sinn, vill nefndin beina því til
herra biskupsins, að hann haldi áfram undirbúningi þess til
næsta Kirkjuþings, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.
VII. Áskorun um fjárveitingu til eflingar kristilegrar og
kirkjulegrar starfsemi, frá biskupi:
Kirkjuþing íslenzku þjóðkirkjunnar skorar á Alþingi að taka
upp á fjárlög árlega fjárveitingu til eflingar kristilegrar og
kirkjulegrar starfsemi á vegum þjóðkirkjunnar kr. 100.000.
Greinargerð, er fylgdi, var svo hljóðandi:
Það er brýn nauðsyn, að kirkjan hafi jafnan nokkurt fé hand-
bært, er hún geti varið til eflingar kristni og kirkjulífs í land-
inu. Má í því sambandi meðal annars nefna:
1. Fyrirlestra- og skólaheimsóknir.
Æskilegt er, að kirkjan geti sent menn, einn eða fleiri, til
fyrirlestrahalds um andleg mál, bæði í skóla landsins og til
safnaðanna.