Kirkjuritið - 01.01.1959, Blaðsíða 18
12
KIRKJURITIÐ
Nánari ákvæði um fyrirkomulag biskupskosninga skal setja
með reglugerð.
4. gr. Biskupar taki laun eftir 3. flokki núgildandi launalaga.
Ennfremur greiðist þeim skrifstofukostnaður og annar kostn-
aður, sem ákveðinn er í f járlögum.
5. gr. Biskup vígir eftirmann sinn; verði því ekki við komið,
vígir hinn biskupinn.
6. gr. Prestastefnur verða tvær, hvor í sínu biskupsdæmi, og
skulu að jafnaði haldnar árlega í Skálholti og á Hólum. Þar
skulu og haldnir aðrir kirkjulegir fundir, eftir því sem ástæður
þykja til.
Báðir biskupar eiga sæti í Kirkjuráði og á Kirkjuþingi og
skiptast þar á um forsæti.
7. gr. Báðir biskuparnir fara með sameiginleg mál kirkjunn-
ar gagnvart stjórnvöldum og koma fram sem fulltrúar Þjóð-
kirkjunnar eftir samkomulagi sín á milli.
8. gr. Biskupar hafa skrifstofur bæði í Reykjavík og á Akur-
eyri. Skrifstofa Skálholtsbiskups hefir jafnframt með höndum
sameiginleg málefni biskupsdæma beggja. Skrifstofustjóri henn-
ar skal skipaður af kirkjumálaráðherra samkvæmt tillögu
beggja biskupa.
Nánari ákvæði um skiptingu á starfssviði biskupa skal setja
með reglugerð að fengnum tillögum beggja.
9. gr. Lög þessi komi til framkvæmdar við næstu biskupa-
skipti, eða þá er núverandi biskup landsins veitir samþykki
sitt til þess. Skal þá þegar kjósa Hólabiskup, en núverandi bisk-
up verður Skálholtsbiskup.
10. gr. Með lögum þessum eru úr gildi felld lög nr. 21, 27. júní
1921 um kosningu biskupa, lög nr. 38, 30. júlí 1909 um vígslu-
biskupa, svo og önnur ákvæði, er í bága koma við lög þessi.
11. Frumvarp um kirkjugarða, lagt fram af kirkjumálaráð-
herra og biskupi.
Kirkjumálanefnd afgreiddi frumvarpið með nokkrum breyt-
ingum, sem þingið samþykkt (frumvarpið sjálft lá fyrir síðasta
Alþingi).
III. Tillaga til þingsályktunar um kostnað við bygging kirkju-
húsa Þjóðkirkjunnar. Lögð fram af Gísla Sveinssyni.