Kirkjuritið - 01.01.1959, Blaðsíða 39
Bœkur.
Skálholtshátíðin 1956. Séra Sveinn Víkingur sá um útgáfuna.
Bókaútgáfan Hamar.
Merk og falleg bók. Fyrri hlutinn verður mörgum kær, þegar
lengra líður, því að þar geymist frásögnin um hinn dýrlega
sólskinsdag í Skálholti, sem öllum viðstöddum verður ógleym-
anlegur. Hátíðinni sjálfri er ljóst og ýtarlega lýst. Ræður, leik-
ur og ljóð birt í heilu líki. Ávörp erlendra kirkjuleiðtoga ekki
sízt minnisverð. Prýðilegar myndir fylgja. Dýrt mundum vér
meta að eiga slíkar heimildir um fornar Þorlákstíðir í Skálholti,
eða suma þá atburði, er þar gerðust áður, bæði í sambandi við
kirkju og skóla.
Enn fróðlegri og veigameiri fyrir marga nú er samt síðari
bókarhlutinn, eftirtaldar ritgerðir: Upphaf Skálholts og hinir
fyrstu Skálhyltingar, eftir dr. Jón Jóhannesson, Skrúðganga
Skálholtsbiskupa eftir dr. Magnús Jónsson, og Skálholtsskóli
eftir séra Benjamín Kristjánsson. Allar skemmtilegar aflestrar
°g geyma geysilegan fróðleik í tiltölulega stuttu máli. Mér þótti
grein dr. Magnúsar skemmtilegust, en sótti mestan fróðleik til
séra Benjamíns, enda einna minnst um það efni ritað áður.
Trúi ekki öðru en mörgum þyki þetta góður fengur.
Slík minningarrit eru orðin alltíð, en mér finnst þetta sakir
efnis og búnaðar í fremstu röð.
Jón Auðuns: Kirkjan og skýjakljúfurinn. (Prédikanir). Isa-
foldarprentsmiðja h.f.
Það sýnir að vissu leyti nokkurn stórhug og víðsýni útgef-
ar>da, að bjóðast til að gefa út prédikanir nú á timum, þegar
fjöldi manns vill ekki heyra þær og enn færri lesa þær. Og eins
°g höfundur víkur að í formála, eru þær líka fyrst og fremst
®tlaðar til flutnings, en ekki samdar með það í huga, að þær
verði prentaðar. En þetta er nú samt bók, sem margur mun vafa-
laust hafa gagn og gleði af að lesa. Sjálfsagt verða sumir höf.
0Sammála um ýmis atriði, hafa sitt hvað út á guðfræði hans og
shýringar að setja, en það er ekki markmið neins prédikara að
feyna að tala eins og allir vilja heyra, enda ógerlegt. Sjálfum
finnst mér ég sækja oft margt og mikið til þeirra, sem ég er
3