Kirkjuritið - 01.12.1960, Blaðsíða 29

Kirkjuritið - 01.12.1960, Blaðsíða 29
Gerðir Kirkjuþings 1960 I. Frumvarp um veitingu prestakalla. Flutt af biskupi. 1. gr. Þegar prestakall losnar og nýr prestur er eigi kallaður til emb- ættisins (sjá 5. gr.), auglýsir biskup kallið með hæfilegum um- sóknarfresti. 2. gr. Þá er umsóknarfrestur er á enda, sendir biskup prófasti og sóknarnefnd(um) prestakallsins skrá yfir þá, er sótt hafa, ásamt skýrslu um aldur þeirra, náms- og embættisferil og störf. Janframt felur hann héraðsprófasti að kveðja kjörmenn presta- kallsins saman á fund innan tiltekins tíma til viðræðna um ráð- stöfun embættisins. Kjörmenn eru: Sóknarnefndarmenn, safn- aðarfulltrúar (aðalmenn) og meðhjálparar sóknanna í kallinu. Á þessum fundi skulu umsóknir og umsagnir biskups liggja frammi til athugunar. Prófastur stýrir fundi. Skal biskup sitja fundinn, ef hann æskir þess, svo og ef prófastur eður sóknar- nefndaroddvitar, einn eða fleiri, óska þess. Sé héraðsprófastur meðal umsækjenda um kallið, nefnir biskup annan prófast til í hans stað. Fundurinn er lokaður. 3. gr. Næsta dag ákveður prófastur kjörfund með kjörmönnum. Kjörfundur er lokaður og stýrir prófastur honum. Fer þar fram leynileg, skrifleg atkvæðagreiðsla um umsækjendur. Prófastur afhendir hverjum kjörmanni einn atkvæðaseðil og ritar kjör- rnaður á seðilinn nafn þess, er hann kýs. Prófastur skilar at- kvæði á sama hátt. Að lokinni atkvæðagreiðslu eru atkvæði innsigluð og send biskupi í póstábyrgð ásamt afriti af gjörða- bók kjörfundar. Verði ágreiningur um undirbúning eða fram- kvæmd kosningar, skal skjóta honum til kirkjustjórnarinnar.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.