Kirkjuritið - 01.05.1961, Blaðsíða 34
KIRKJURITIÐ
224
komandi op öll framfaramál safnaða sinna mjög til sín taka.
Hann var 18 ár í stjórnarnefnd Elliheimilisins að Gimli, for-
maður hennar og prestur heimilisins í 12 ár. Kirkjufélaginu
reyndist liann ágætur starfshróðir og var árum sarnan ritstjóri
tímarits þess, Sameiningarinnar. Skrifaði hann fjölda greina í
liana og önnur tímarit og blöð. Ævisögu sína mun hann einn-
ig hafa samið að meira eða minna leyti.
Séra Sigurður var tvíkvæntur. Hann kvæntist fyrri konu
sinni, Halldóru Ingibjörgu Hallsson, árið 1907, en missti liana
eftir fá ár frá þremur ungum dætrum. Seinni kona hans, Ingi-
hjörg Jólianna Ólafsson, lifir hann, og bjuggu þau saman í 38
ár í mjög farsælu lijónabandi. Þau eignuðust tvo sonu. Taldi
séra Sigurður það mestu gæfu lífs síns að liafa ldotið svo mik-
ilhæfa og ágæta konu, er var lionum samhent í starfi hans að
kristindómsmálum og um sumt brautryðjandi.
Séra Sigurður var okkur, sem kynntumst honum, einkar
hugþekkur og minnisstæður, prúðmenni hið mesta og Ijúf-
menni. Komu mér í hug við fráfall lians sæluboðanir Fjall-
ræðunnar: Sælir eru hógværir, miskunnsamir, hjartahreinir,
friðflytjendur.
Þeir munu Guðs ríki erfa.
Það mildar söknuð ástvina hans og okkar, sem áttum að
fagna nánum kynnum af honum.
Við kveðjum liann með virðingu og þökk.
Guð láti sitt eilífa ljós lysa lionum.
ÁsmunduT GuSmundsson.
Bœn
Kristur, við krossinn þinn
krýp ég í þetta sinn.
Hleyp þú í huga minn
haustmyrkan Ijósi inn
Þarfnast ég ásjár enn
andrýr sem breyzkir menn.
Angra mig eðlin tvenn.
Auðmýkt mér kenn.
Úljur Ragnarsson.