Kirkjuritið - 01.01.1965, Page 45
KIRKJURITIÐ
39
Jóhannes páfi 23. markaði nýja braut í þessa átt. Hann sté ofan
ur gullnu liásæti sínu og gekk út á götuna og inn í fangelsin.
PáU páfi er sennilega ekki eins djarfhuga og jafn laus við
Preddurnar. En samt er hann líks sinnis. För hans til Jerúsalem
°g síðar til Indlands har þess ótvírætt merki að hann ætlar ekki
°ð loka sig inni í Vatíkaninu né læsa sig kreddufjötrum. Lítið
atvik varpar skæru ljósi á gildi þessa. Páfinn heimsótti m. a.
niunaðarleysingjaliæli á Indlandi. Einn drengurinn ]>akkaði
honum komuna. Hann lýsti fátækt þeirra þarna á liælinu. Þeir
ættu enga fjármuni. Sumir ekki einu sinni foreldra né neina
vandamenn, svo sem liann sjálfur. Þess vegna gætu þeir ekki
launað páfa konnina. Guð yrði að gera það.
í*arna rak páfinn meira og áhrifaríkara kristniboð en ef til
vill með nokkru bréfi sínu.
Innan vorrar kirkjudeildar játa menn að vér þörfnumst vor-
aldar og krafist er margvíslegrar endurnýjunar. En aðrir líta
frekar um öxl til fornra fyrirmynda en Iiorfa fram í leit nýrra
leiða.
1 Danmörku hafa ellefu prestar — þar á meðal Dag Möller og
Poul Ulsdal, sem oss eru báðir kunnir — nýlega gefið út bækl-
lng, er nefnist Kirkpns Ja og Nej. Þykir þeim danska kirkjan
um of óákveðin í boðskap sínum og vilja styrkja lútherskan
fetttrúnað. Prófessor Regin Prenter og Chr. Baun, biskup, tjá
S1g þessu fylgjandi. En aðrir rísa upp til andmæla og telja von-
laust að ætla „að færa klukkuna aftur á bak“.
1 Svíþjóð standa enn deilur út af vígslu kvenpresta og finnst
ymsum þó annað kalla meira að.
I Englandi kveður all mjög við annan tón. David L. Edvards
ntaði ekki alls fvrir löngu í C.E.N. á þessa leið: Kirkjan verður
að gjörbreyta tíðasöngnum, orðalagi kennisetninga sinna og
starfsaðferðum, til þess að ná til fólksins eins og það er, ekki
eins og það ætti að vera (að hennar dómi). Hún ætti að láta sig
minna skipta gamlar kirkjuvenjur og söguminjar heldur en
kristna menn nú á dögum. Það á ekki lengur að líta á prestana
sem „séra“ og eina af helztu fyrirmönnunum, heldur sem „sálna-
hirða“, menn, sem gegna þjónustu Krists í söfnuðunum, Trú-
aðir leikmenn eiga lieldur ekki að sækjast eftir að vera „um-
ferðapredikarar“, heldur lifandi starfsmenn innan safnaðanna.
Einstakir söfnuðir og kirkjudeildir um víða veröld verða þess