Kirkjuritið - 01.01.1965, Side 51
KIRKJURITIÐ
45
Gerða ég það' þá fyrir Guðs sakir að gefa lionuni upp málið,
°g vissa eg að þá mundi ég það fyrir taka, er mér væri liall-
l'vaenist. Bauð ég lionum lieim til mín, og var liann með mér
lengi síðan.
í*á snerist orðrómurinn og þar með virðing manna, og lagðist
mer síðan liverr lilutur meir til gæfu og virðingar en áður“.
1 egur fyrirgefningarinnar
Hér er sögð merkileg saga þar sem maður yfirvinnur liefndar-
llng sinn í viðkvæmu einkamáli svo gersamlega, að hann býður
°vini sínum til sín og gerir allt liið bezta til hans, eftir að liann
bafði þungan áverka af lionum tekið.
Katli verður það allt í einu ljóst, að lieiftræknin er ættar-
Hdgja Möðruvellinga, og hafði bæði bann og aðrir frændur
bans hlotið af henni ógæfu eina. Þá ræður liann það við sig að
Veþja öfuga leið, fyrirgefninguna, sem er vegur kristindómsins,
8em hann reyndar sjálfur prédikaði í kirkju sinni að Möðru-
völlum, og sú leið varð honum þegar til gæfu og gengis. En með
þessari sögu fékk liann ekki aðeins sætt þá Þorgils og Hafliða
°g gert þá að góðum vinum eftir langvinn og illvíg málaferli,
beldur var liann sjálfur á þessu sama þingi kjörinn biskup yfir
Norðlendingafjórðungi, og þjónaði því embætti síðan um langa
stund við mikla virðing.
Dramb er falli nœst
Nú hefur verið á það drepið, hvernig heiðnin og kristnin
vogust lengi á í liugum hinna fornu ættarhöfðingja í Eyjafirði,
°g hvernig fyrirgefningin entist þeim belur til virðingar og
baniingju en lögmál hefndarinnar. Þannig liefur þetta verið um
alla veröld og mun ávallt verða.
En það eimir eftir af beiðninni í oss öllum. Það kostar alltaf
lnikið átak að sigra lieiðingjann í sjálfum sér, bjóða vinstri
vangann, þegar maður er lostinn á þann liægri. Flestir eru
þannig gerðir, að tilhneigingin er rík til hefndarinnar, ef þeim
finnst sér misboðið, enda þótt þessi tilhneiging sé ekki framar
studd af trú vorri eða lífsskoðun. Margur er langminnugri á
það, sem lionum er á móti gert en velgerðir, og liggur þó í aug-
nni uppi, að það er ranglátt. Oft liafa lílilfjörlegar mótgerðir