Kirkjuritið - 01.07.1968, Page 20

Kirkjuritið - 01.07.1968, Page 20
338 KIRKJURITIÐ ólfssonar, en útgefandi er Heimatrúboðið í Reykjavík. fJtgáf- an er mjög smekkleg og ber að þakka þetta framtak. Aðrar nýjungar í útgáfumálum eru fljóttaldar. Geta ber þ° liinnar fallegu æskulýðssöngbókar, Unga kirkjan, sem Æsku- lýðssamband kirkjunnar í Hólastifti gaf út, svo og Æsku- söngva, sem út komu á vegum Æskulýðsnefndar þjóðkirkj- unnar. Prentað var á vegum Biblíufélagsins allstórt upplag af Nýja testamentinu. Það var prentað og bundið í London. Hefur af- greiðsla dregizt lengur miklu en um var samið, en nú inun mega vænta þessara bóka á markað innan tíðar. Nýtt upplag af Biblíunni í tvennum stærðum er einnig væntanlegt bráðlega- Ég vísiteraði tvö prófastsdæmi á árinu, Skagafjarðar- °S Húnavatnsprófastsdæmi, og auk þess Vestmannaeyjar í Kja'‘ arnessprófastsdæmi, alls 43 kirkjur. Vil ég hér árétta þakku núnar til prófasta, presta og safnaða fyrir mikla gestrism þeirra og hina ágætustu samveru. Ég sótti biskupafund Norðurlanda, sem að þessu sinni vai í Túnsbergi í Noregi 8.—11. ágúst, flutti þar eitt erindi og prédikaði við þá almennu guðsþjónustu, sem baldin var 1 Túnsbergsdómkirkju í sambandi við fundinn. Norrænn prestafundur var í ágústmánuði í Uppsölum °S sóttu hann af Islands hálfu prestarnir sr. Gunnar Árnason, sr- Jón Þorvarðsson, sr. Sigurjón Guðjónsson, sr. Kristján Búason og sr. Bernharöur Guðmundsson. Sr. Helgi Tryggvason og sr. Bernharður Guðmundsson satn alþjóðlega skólamálaráðstefnu kirkjunnar manna og síðan fund uppeldisfræðinga í Bástad í Svíþjóð seint í júlí 1967. Sr. Kristján Biiason sat fyrir mína bönd fund í stjórn noi- rænu, ekumenísku stofnunarinnar í Sigtúnum í byrjun þessa ars. Mér var boðið til Færeyja í byrjun september til þess a taka þátt í endurvígslu Kirkjubæjarkirkju. Auk þess var mel boðið að prédika í dómkirkjunni í Þórsliöfn og í kirkjunm 1 Fuglafirði. Færeyingar standa oss nærri og eru oss frenir1 1 sumum efnum. Væri æskilegt að kirkjulegt samband milli þesS ara frændþjóða mætti eflast og hygg ég, að það yrði ekki si ^ ur ágóði fyrir oss en þá. í því sambandi vil ég ekki láta hja

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.