Kirkjuritið - 01.07.1968, Qupperneq 28

Kirkjuritið - 01.07.1968, Qupperneq 28
KIRKJURITIÐ 346 háskólann í Greifswald og árið 1930 tók liann við fullri uin- sjá og umráðum yfir stóreignum og landeign ættarinnar í Trieg- loff. En það var mjög umfangsmikil starfsemi. I ætt liaiis var sterk kirkjuleg lineigð, erfð og arfsagnir í lieiðri liafðar. Hann fékk strangt kirkjulegt uppeldi og tók á stúdentsáruni mikinn þátt í safnaðarlífi stúdenta í Háskólanum. Aðeins eitt gjörði hann frábrugðinn ölluin öðrum afkoin- endum Thadden-ættarinnar: Hann neitaði að taka þátt í ein- vígi, þar eð hann sem kristinn maður taldi fráleitt að taka þátt í svo villimannlegum leik, þótt arfsögn og venjur ættar- innar teldu slíkt sjálfsagt og eðlilegt. Hann varð því að bíða árum saman eftir prófi sem lautinant, þareð ættin gjörði ráð fyrir einvígi sem lokaþætti slíkrar upphefðar. En loks konm þeir sér saman um það, faðir Thaddens og keisarinn sjálfm' að Tliadden fengi að ljúka þessu stigi í hernaðarfræðinni a annan hátt. Það var vegna liins kirkjulega áliuga Thaddens, að liann var valinn til formanns í hópi kristilegu stúdentahreyfingar- innar gegn Hitler, þá 37 ára gamall. Það kom því í lians hlut að berjast fyrir frelsi stúdentahreyfingarinnar gegn sífelh sterkari hindrunum og lireinsunum. Þetta tókst fram til ársins 1938. En þá leysti Himmler kristilegu stúdentasamtökin upp og lagði liald á eignir þeirra. Þá var andstaða Thaddens svo sterk, að raunverulega mátti telja hann hinn óvígða biskup í Pommern þótt leikmaður væri. Hersetustjórinn í belgíska liáskólabænum fékk dag nokkurn 1944 skipun um að innheimta nafnlista allra katólsku stúdent- anna þar, en þeir voru uni 10 þús. talsins. Það átti að flytja þa hurt til nauðungarvinnu í Þýzkalandi. Yrði neitað að fram- selja stúdentana skyldi taka fastan rektor Háskólans hmn þekkta katólska klerk mons. Waeyenbergli. Þýzki varnarmálaforinginn vissi, að yrði liann ekki til að framfylgja þessari skipun mundi S. S. gjöra þetta, og það fljótt og ákveðið. Hann heimsótti því sjálfur rektor Waeyen- bergli í klaustur lians og kynnti honum einslega alla málavexti- Næsta morgun voru allir nafnalistar komnir í öruggan feln- stað, en búið var að handtaka rektorinn, en raunar á þann liátt, að hann flutti í kyrrláta klausturbyggingu á fjarlægnm stað og var þar óhulltur unz styrjöldinni lauk.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.