Kirkjuritið - 01.07.1968, Síða 36

Kirkjuritið - 01.07.1968, Síða 36
Gunnar Árnason: Pistlar Fallinn foringi 6. júní s. 1. andaðist dr. Franklín Clark Fry á sjúkrahúsi í NeW York. Aðeins viku áður liafði liann staðið mitt í straumnum og vísað veg til beggja lianda. Enginn kirkjuhöfðingi, sem ég lief nokkuð kynnst hefur minnt mig meir á ummæli um Gissur biskup Isleifsson. Hanö var vel fallinn til hvaða liöfðingja sem vera vildi. Fry stóð alls staðar upp úr og var sjálfkjörinn til foringja hvar sem liann bauð fylgd sína. Sæmdur mörgum metorðuin m. a. doktor við 35 liáskóla. En livorki valdið né tignin steig honum til liöfuðs, eins og því miður hefur gerzt nm suma kirkjuliöfðingja um allar aldir, sem frekar apa lirokafulla aðalsmenn en ástunda Iiógværa Kristsþjónustu. Franklín C. Fry fæddist 30. ágúst í borginni Bethlehem * Pensylvaníu í Bandaríkjunum. Faðir hans og afi voru báðir forystumenn lútlierskra kirkjudeilda. Fry tók prestsvígslu 1925 og var næstu 15 árin prestur í Akronborg í U. S. A. 1944 var hann kjörinn forseti höfuðdeildar lútlierskra manna 1 Bandaríkjunum, síðar yfirmaður Sameinuðu lútliersku kirkj' unnar í Ameríku. Forseti Lútlierska Heimssambandsins 195^ —63. Eftir það í framkvæmdarstjóm þess og formaður ^ varpsnefndarinnar. Þá varð hann forseti framkvæmdanefnd' ar Alkirkjuráðsins undanfarin 14 ár. Enginn var lionum snjallari að stýra lieimssamkundunn Hann virtist vita skii á liverju máli, kunni fundarsköp upP ‘l sína tíu fingur, úrskurðaði hiklaust ef til þeirra kasta kom- Allir hlýddu lionum fyrir virðingar sakir en ekki af þrælsótta- Glæsimennskan var tindrandi, hlýjunnar fundu allir til. Ef 1 glímu sló á þingum felldi hann menn með sniðugheitum (11 ekki bolabrögðum. Andstæðingurinn hörfaði lítt sár en sig1' aður af hólmi.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.