Kirkjuritið - 01.07.1968, Page 40

Kirkjuritið - 01.07.1968, Page 40
KIRKJURITIÐ 358 Til þess nægir ekki að berja bumbur. Það verður að lata breytnina tala, ekki með ofbeldi lieldur í kærleika. Kristindómurinn þarf að komast meii-a á dagskrá Guðfræði er engin trúarlærdómur, enn síður óskeikulleiki eða helgur lilutur. Hún er skýringartilraunir manna á helgiritum- Þess vegna síbreytileg og ósamhljóða. 1 gagnmerkri bók uffl guðfræðistefnur á þessari öld, lýsir ameríski prófessorinn John Macquarrie 21 guðfræðistefnu. Eru þær svo sundurleitar að furðu gegnir. Þær róttækustu nálgast guðleysi og draga jafnvel upprisu Krists í efa, en þær fornlegustu liafa verið nefndar nýrétttrúnaður og telja fylgjendur hans sig geta full' yrt all miklu meira um Guð en flestum er skiljanlegt. Sögulegar rannsóknir á ritum Biblíunnar eru stórmerkar og þó efalaust ekki öll kurl Jiar komin til grafar. Þær rannsóknir liafa líka valdið gjörbreytingu á guðfræðinni almennt. En hvað sem öllum sagnfræðingum og guðfræðingum líður gegnir sania máli um Biblíuna og öll önnur rit. Hverjum sem vita vill skil á kristinni kenningu er nauðsynlegast að lesa sjálfar frum- beimildirnar — Nýja-testamentið. Og verður mönnum J)á oft liinn andlegi skilningur og hrifning miklu drýgri en lestur þykkra guðfræðidoðranta. Það var megin mein kaþólsku kirkjunnar fyrr á öldum að almenningur átti Jiess ekki kost að lesa Ritninguna upp a eigin spýtur og varð að sætta sig við það, sem prestarnir gáf11 á garðann. Biblían er nú öllum opin liér í landi en Jieir munu teljamb? sem nokkru sinni bafa lesið N. T. livað }>á Jiað gamla. AfleiS- ing þess er sú að flestir liafa livorki áhuga á né þekkingu til tala um kristindóm, eða velta honum nokkuð að ráði fyrir ser- Þar er kal í liugtúnunum. Þetta áliugaleysi sést ekki aðeins á lélegri kirkjusókn. Það er undantekning að menn spyrji nokkurs varðandi trúmál i blöðunum, sem alsiða er annars staðar. Oftar en einu siniu hefur verið vikið að Jiví bér í Kirkjuritinu að menn baeru fram fyrirspurnir í stuttu máli um kristni og kirkjumál. E11 Jiögnin hefur verið eina svarið. Þetta kæruleysi er uggvænlegra en margan grunar. Og er Jiví enn vakið máls á því.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.