Kirkjuritið - 01.12.1974, Blaðsíða 50
DR. RICHARD BECK:
flvarpsorð á prestastefnunni 1974
Herra biskup! Virðulega prestastefna:
Ég er hjartanlega (Dakklótur, herra biskupinum, fyrir þann sóma,
sem hann hefir enn einu sinni sýnt mér, með því að bjóða mér að
óvarpa prestastefnuna að þessu sinni, og ég þakka innilega hlý orð
hans í minn garð.
Á þessu mikla afmœlisóri þjóðar vorrar ber þjóðkirkja íslands hátt
við sögunnar himin. Hún hefir, i andlegum skilningi, fylgt mér frá
upphafi vega, og fylgir mértil daganna enda. Fœ ég eigi betur vottað
henni þakkarskuld mína, en með eftirfarandi vísu, sem ég sendi í bréfi
til Sigurbjörns biskups fyrir stuttu síðan:
í bernsku ég lœrði bœnir við móðurkné;
þœr blessun mér fœrðu á löngum œvivegi.
Ei rýrnar að gildi með árum það erfðafé,
en ótœmdur sjóðurinn fram að hinzta degi.
í þeim anda bið ég Þjóðkirkju íslands og öllum hennar þjónum ríku-
legrar blessunar Drottins allsherjar. Ættþjóðinni minni, og ykkar, bið
ég, á 1100 ára afmœli íslands byggðar, gœfu og velfarnaðar um alla
ókomna tíð, í ódauðlegum orðum þjóðskáldsins:
íslands þúsund ár,
verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár,
sem þroskast á Guðs ríkis braut.
336