Kirkjuritið - 01.12.1974, Blaðsíða 87
Mótsgestir viS Skálholtskirkju.
^ér fy|gir SVo ávarp það, í íslenskri
Pýðingu, sem Rósa Björk Þorbjarnar-
^óttir, formaður Prestkvennafélags [s-
ands, flutti við setningu Norrœna
Prestkvennamótsins í Norrœna húsinu
29- iúlí 1974:
Kœru gestir. Verið þið hjartanlega
^elkomnir til þessa 12. norrœna prest-
Vennamóts, sem nú er haldið á ís-
Qndi í fyrsta sinn.
(Bcen) „Drottinn, þú hefur verið oss
^thvarf frá kyni til kyns." Við þökkum
Pér, ag v|g getum gert þessi orð að
° kctr orðum. Við biðjum þig þess
það, sem við fáum að sjá og
heyra á þessu móti, geri okkur ríkari
af anda þínum. í Jesú nafni. Amen.
Norrœnt prestkvennamót er nú haldið
á íslandi í fyrsta skipti. Hér eru full-
trúar allra Norðurlandanna nema Fœr-
eyja, en þaðan komu því miður engir
þátttakendur.
íslenskar prestkonur eru aðeins
rúmlega eitt hundrað og auk þess bú-
um við langt hver frá annarri í þessu
stóra landi, en það hefur i för með
sér nokkra erfiðleika, þegar slíkt mót
sem þetta er haldið. Við, sem höfum
undirbúið þetta mót, höfum allar reynt
að gera okkar besta, og við vonum,
373