Kirkjuritið - 01.12.1974, Blaðsíða 89
og erlendis
Nýr erkibiskup í York
Nýr erkibiskup hefir verið valinn á stól
í Jórvík í stað dr. Coggan, sem tekið
hefir við embætti höfuðbiskups Eng-
lands í Kantaraborg.
Erkibiskupinn nýi heitir Stuart Yar-
worth Blanch. Hann hefir verið biskup
í Liverpool síðan 1966 og er nú 56
ára að aldri, bóndasonur.
Menntun hlaut hann í Alleyneskólan-
um í Dulwich. Vann síðan í nokkur ár
hjá tryggingafélagi í London, en gekk
Þá í flugherinn brezka og var leiðsögu-
maður á flutningaflugvélum aðallega í
Austurlöndum fjær. Á þessum árum
kynntist hann raunverulegum kristin-
dómi. Hann þjónaði sem liðþjálfi í
Burma og las þá Nýjatestamentið
reglubundið og skipulega. Þessi
reynsla hans af Guðs orði og kristn-
urn mönnum varð til þess, að hann
hóf háskólanám í Oxford, er herþjón-
ustu hans lauk. Að því búnu hóf hann
nám í Wyclilfe Hall prestaskólanum í
°xford. Að því námi loknu vígðist
hann djákni til Highfieldkirkju í Ox-
fordbiskupsdæmi, en árið 1952 gerð-
'st hann sóknarprestur í Eynsham. Þar
Þjónaði hann til ársins 1957, er hann
varð aðstoðarforstöðumaður Wycliffe
Nall prestaskólans. Kórsbróðir varð
hann við dómkirkjuna í Rochester árið
1960 og biskup í Liverpool árið 1966.
Það er haft á orði, að hann hafi
verið lítt þekktur meðal 'kennilýðs í
Liverpool, er hann var valinn biskup.
Menn sögðu: „Hver er hann, ég hefi
aldrei heyrt hans getið.“ Dr Blanch
reyndist merkur biskup í Liverpool.
í „Church Time“ er hann kynntur
svo, að hann sé sérlega mannlegur.
Engum þyki óþægilegt að vera í ná-
vist hans. Hann sé laus við allan hefð-
arþótta og hafi einstakt lag á, að fólk
fái notið sín í návist hans, er það ræði
við hann. Hann sé glettinn, en virðist
þó feiminn við fyrstu kynni. Hugmynda-
ríkur er hann og þorir að hætta á ný-
lundu, sem honum þykir þess virði að
reyna. í starfi sínu leggur hann mesta
áherzlu á trúboð, og var sá, sem að
mestu stóð fyrir trúboðshreyfingu um
Norður-England, er nefnd var „Call
to the North“. Dr. Blanch er einlægur,
trúaður maður. Predikanir hans þykja
einfaldar, skýrar og lausar við tilfinn-
ingasemi. Fyrirlestrar hans í Liverpool
biskupsdæmi, víðsvegar, sem fjölluðu
um Biblíuna, voru mjög eftirsóttir.
Hinn nýi erkibiskup í Jórvík er kvænt-
ur og faðir fimm barna. Fjölskyldan er
öll listhneigð. Allir leika á hljóðfæri.
Mjög góðar vonir eru bundnar við dr.
Blanch og hið nýja starf hans.
375