Kirkjuritið - 01.12.1974, Blaðsíða 58
SlRA HEIMIR STEINSSON, REKTOR:
Tilvera til dauða, -
111kvittnir menn hafa löngum sagt,
að andatrú sé þ|óðarátrúnaður ís-
lendinga. Hvorki skal sú fullyrðing
staðfest hér né henni hafnað. Hitt er
víst, að svonefndar „sálarrannsóknir"
gegna umtalsverðu hlutverki í trúar-
legri hugsun þessarar þjóðar. Víðast
hvar þar sem tveir eða þrír eru sam-
an komnir og trúmál ber á góma, eru
,,sálarrannsóknir" á nœsta leiti. ,,SáI-
arrannsóknamenn" eiga sér og skel-
egga málsvara. Ef einhverjum verður
það á að troða þeim um eina tá eða
fleiri, fœr hinn sami sjöfalt endurgjald
að minnsta kosti. Síðast í vetur varð
góðvini mínum það á að beina fá-
einum skeytum að umrœddri stefnu I
kirkjuþœtti Morgunblaðsins. Einn af
œðstu prestum „sálarrannsókna"
svaraði með breiðsíðu, sem nœgt
hefði til að fœra hverja venjulega sál-
arskútu í kaf.
Ekki skulu þessi orðaskipti gerð að
umtalsefni sér á parti. En því nefni
ég þau, að þar er á ferðinni gott dœmi
um þann herskáa anda, sem löngum
hefur verið eitt megineinkenni „sálar-
rannsókna" hérlendis. Afleiðing þeirra
viðbragða er orðin sú, að fœstir
árœða að skipta orðum við málsvara
þessarar stefnu opinberlega.
Hin miklu áhrif „sálarrannsókna
hér á landi eru þeim mun einkenm-
legri sem öll sú hugsun, er til grund-
vallar þeim liggur, virðist vera þoku-
kennd og grautarleg í mesta mata.
Fróðlegt vceri að gera tilraun til að
staðsetja þetta fyrirbœri á einhver|D
því þrepi trúarbragðasögunnar, Þar
sem það kynni að eiga heima. Ra®
yrði þó of langt mál. Hins skal freistað
i eftirfarandi orðum að varpa Ijósi a
„sálarrannsóknir" frá tveimur hIiðum,
sem báðar eru býsna mikils verðar 1
þessu efni.
„Sálarrannsóknir" eru allajafn0
kenndar við „vísindi". Sjálft orðið
„rannsóknir" felur það í sér, að urn
er að rœða einhverja þá athafnasemu
sem á að vera í œtt við raunvísindi.
öld raunvísinda taka menn þessan
fullyrðingu fegins hendi, gjörsamleg0
óminnugir þess, að raunvisindi erU
marklaus með öllu, þegar um þa® er
344