Kirkjuritið - 01.12.1974, Blaðsíða 55
HELGI ÍVARSSON, HÓLUM:
Auðugt er
Það samfélag,
sem á
kirkjustað
Fyrir réttum 56 árum, þann 1. des-
ember 1918, var mannfjöldi saman
kominn fyrir framan Stjórnarráðshús-
ið í Reykjavík. Tilefnið var, að þann
dag var ísland lýst frjálst og fullvalda
ríki. Einn af ráðherrum þáverandi rík-
isstjórnar ávarpaði mannfjöldann og
sagði m. a.: „í dag eru tímamót. í dag
byrjar ný saga, saga hins viðurkennda
íslenska ríkis. Fyrstu drœttina í þeirri
sögu skapar sú kynslóð, sem nú lifir,
frá þeim œðsta, konunginum, til þess,
sem minnstan hefir máttinn. Það eru
ekki stjórnmálamennirnir, er miklu
ráða um mál þjóðarinnar, sem skapa
hina nýju sögu, nei, það eru allir". Og
enn sagði hann. „Allir, sem inna lífs-
starf sitt af hendi með alúð og sam-
viskusemi, auka veg hins Islenska rlk-
is og sú er skylda vor allra." Þessi orð
um skyldur þegnanna við þjóðfélagið
eru í sama gildi nú og fyrir 56 árum.
Þjóðfélagið er ekki annað en hópur
einstaklinga, er móta það með hegð-
un sinni. Efnahagsmál alþjóðar eru
spegill af fjárhagsstjórn einstakling-
anna, og menningarlíf þjóðarinnar er
sameiginlegt afsprengi þess, er við,
hvert og eitt, afrekum í þeim efnum.
Einn af einvaldskonungum Evrópu,
sem ríkti fyrir mörgum mannsöldrum,
hafði að orðtaki, „ríkið það er ég,"
og hefir til þess verið vitnað til marks
um ofurdramb hans og valdahroka.
Þó mœttum við þegnar lýðríkisins ls-
lands festa orð hans í minni, gera
þau að okkar orðum og segja, „ríkið
það er ég," þv! að vissulega erum það
við, sem sköpum ríkið í okkar mynd.
Þann 17. júní 1944 var íslenska lýð-
veldið stofnað. Af því tilefni fóru fram
vegleg hátíðahöld, þar sem forystu-
341