Kirkjuritið - 01.12.1977, Síða 38
koma muni aftur. Hann segir, að Gyð-
ingartrúi því raunar einnig með nokkr-
um hætti, að spámennirnir lifi. „Þeir
eru ekki dauðir í vitund okkar. Við
erum sífellt að lesa þá og nema af
þeim. Eins er því farið um Jesúm,
segir hann."
Blessaður sé hann
— Einhvern tíma sagðir þú frá stúlku,
sem hafði verið hjá okkur, en var
komin í herinn. Þú spurðir hana, hvort
hún læsi enn Nýja testamentið.
— Á? Já, hún var úr guðhræddri
fjölskyldu, Gyðingur, en hafði unnið
hjá okkur við barnagæzlu. Síðan varð
hún herskyld, en kom í heimsókn til
okkar, þegar hún hafði leyfi. Þá spurði
ég hana: ,,Nú, hvernig farnast svo sál-
artetrinu þarna í hernum?" Þá brosti
hún og svaraði: „Ég skal segja þér,
Aili, að ég les í litlu bókinni á hverj-
um degi. Og ég er ekki ein um það.
Flestir eru með hana hjá sér. Og séum
við send í einhvers konar hættuför, þá
held ég að allir hafi hana í vasanum.
Það er eins og allir hafi trú á henni
sér til verndar."
— Og hún var sem sagt ekki krist-
in?
— Hún var ekki kristin, en hún kom
á samkomur hjá okkur, á meðan hún
starfaði hjá okkur, og fór að trúa.
— Og svo að lokum: Er það enn
sannfæring þín, að kristnum rnönum
beri að reka kristniboð meðal Gyð'
inga?
— Já, vissulega.
— Og hvers vegna?
— í fyrsta lagi segir svo skýrum
orðum í bréfi Páls postulla til Róm-
verja. Ég trúi því, að öll afstaða Gyð'
inga til Jesú muni breytast. Hún hefur
breytzt mjög mikið og mun halda á'
fram að breytast. Jesús sagði
leiðtoga ísraels, sem í senn voru
trúar- og þjóðarleiðtogar: „Þér mun-
uð ekki sjá mig, fyrr en þér segió;
Blessaður sé sá ,sem kemur í nafn1
Drottins.“ ísraelsmenn verða fyrst ^
læra að trúa á hann og vænta endur'
komu hans. Og síðan munu þeir fa
að líta hann. Vegur þeirra er hinn
sami og vor allra annarra, trúin.
G. Ól. Ól. skráði
Því aS, ef þú ert höggvinn af þeim olíuviSi, sem eftir eSli sínu var villiviSur,
og ert móti eSli þínu græddur viS ræktaSan olíuviS, hve miklu fremur munu
þá þessar náttúrlegu greinar verSa græddar viS sinn eigin olíuviS.
Rómv. 11, 24.
276