Jörð - 01.12.1945, Side 65
JÖRÐ
269
ast ekki lengur með í flokki stórveldanna. Og hvorki við né
Bretar þurfum að hafa áhyggjur af slíkri framkomu. Þangað
til þessu sálarsjúka millibilsástandi er lokið, verðum við og
Bretar að sýna Frakklandi í senn festu og skilning, eins og við
gerðum í Sýrlandsmálinu. Við viljum ekki særa tilfinningar
þess, en megum heldur ekki láta það komast upp með ótil-
lilýðilegan yfirgang.
YARNARKERFI það, sem Soviet-Rússland er að byggja
upp, er einnig farið að skýrast í höfuðdráttunum. Enn
sem komið er myndast það af belti af smáríkjum, sem liggur
yfir þvera Evrópu, frá Finnlandi suður í gegnum Pólland og
Balkanlöndin suður að Svartahafi. En allar líkur benda til
þess, að Rússland ætli að stækka þessa röð af smáríkjum rneira
og minna háðum sér, þangað til það hefur „sjálfstæð en vin-
véitt" ríki allt í kringum sig, frá Evrópu til Austur-Asíu. Til
dæmis hafa Rússar þegar lýst yfir þeirri ætlun sinni að gera
nýjan vináttusamning við Tyrkland. Litlu austar, í íran, vildi
svo til, að stjórnarskipti urðu fyrir óbeint tilstilli rússnesku
stjórnarinnar. Og enn lengra í austri virðist svo sem áhrif
kommúnista séu farin að breiðast út í Sinkiang-héraðinu í
Kína. í Norður-Kína og Ytri-Mongólíu eru stjórnarvöld vin-
veitt Rússum þegar föst í sessi. Loks, ef Rússar koma í stríðið
gegn Japönum, mun fyrsta skref þeirra verða að sækja inn í
Mandsjúríu og Kóreu.* (Aftur á móti hefur enn ekkert komið
fram, sem bendir til þess, að Rússar ætli að þvinga þessi smá-
i'íki til þess að taka upp hjá sér kommúnisma. I Finnlandi,
Búlgaríu og Mið-Evrópulöndunum, sem rauði herinn hefur
hernumið, hefur auðvaldskerfið verið látið alveg afskiptalaust).
Þegar Sovietríkin hafa girt sig Jressu varnarbelti af smáríkj-
um, munu þau að öllum líkindum losna við óttann við Vestur-
veldin, sem liefur ofsótt þau — ekki að ástæðulausu — síðan
Ráðstjórnarlýðveldin voru stofnuð. Og ef við höfum nokkra
von um langvarandi frið, verðum við að trúa þeirri fullyrðingu
Rússlands, að það ætli sér ekki að sölsa undir sig nein lönd, sem
liggja utan liins rússneska varnarsvæðis.
*) Lesandinn athugi, að gveinin er skrifuð áður en þetta varð. — Ritstj.