Jörð - 01.12.1945, Blaðsíða 92
296
JÖRÐ
sem kann að taka vel við gestnm, þannig að sambærilegt sé við.
þær viðtökur, sem veittar eru í öðrum menningarlöndum. Ef
til vill mætti hér koma upp fríhöfnum, þar sem flugvélar frá
ýmsurn löndum gætu lagt af sér vörur, án þess að borga toll og
tekið síðar upp þessar vörur og flutt þær til annara landa. Slík-
ar fríhafnir hafa víða skapað mikil viðskipti og aukið á verzl-
unarmöguleikana. Má til dæmis benda á þýðingu fríhafnar-
innar í Kaupmannahöfn fyrir þá borg.
Hugsanlegt er að í framtíðinni gætu íslenzkir verzlunar-
menn rækt hér urnboð fyrir amerísk verzlunarfélög og iðnfyrir-
tæki og t. d. séð um dreifingu til skandinavískra landa.
Virðist það að minnsta kosti öfugsnúið að sækja til Dan-
merkur eða Svíþjóðar eftir vörum, sem seldar eru frá Banda-
ríkjunum, þegar þær væru fluttar flugleiðis yfir ísland. En
þarna reynir aftur á, að íslenzka verzlunarstéttin fái skilyrði til
þess að mennta sig sem bezt og frjálsræði til þess að athafna sig
og safna nægilegu fjármagni.
í flugferðir milli landa má búast við, að framan af verði að-
allega notaðar mjög stórar fjögra hreyfla vélar, er taki allt að
því hundrað farþega í sæti. En að nóttunni til er sætunum
breytt í rúm og er í flugvélum þessum allur nauðsynlegur út-
búnaður til þæginda, eins og gerist á beztu skipum eða veit-
ingahúsum. Gert er ráð fyrir, að slíkar 100-farþega flugvélar
geti flogið með rúmlega 500 km. lnaða á klukkutíma og hafi
allt að því 3500 hestafla lneyfla, fjóra að tölu, eins og fyrr var
sagt.
Innanlands í Bandaríkjunum er mér kunnugt um, að fyrir-
hugað er að nota mjög vélar þær, senr kallaðar eru Douglas
Skymaster, C-54, til farþegaflutninga. Eru það einnig fjögra
hreyfla vélar, allstórar, er fljúga nú títt yfir Atlantshaf og hafa
reynzt prýðilega. Þær vélar munu taka 30—40 farþega, ef ég
man rétt.
Þá er hugsanlegt, að smám sanran aukist notkun hinna svo-
kölluðu rakettu-flugvéla, þannig að eftir ekki nrörg ár þyki
það hægfara farartæki, sem ekki gengur 7—800 km. á klukku-
tíma eða jafnvel enn þá meira.
Reynsla sú, sem fengist hefur af rakettusprengjunr og hinum