Jörð - 01.12.1945, Qupperneq 95
JÖRÐ
299
byggingarlist, þrátt fyrir það, hve hún er ung, þegar orðin
steinrunnin í orðsins bókstaflegustu merkingu.
Það þykir tæplega lnis með húsum, sem ekki er byggt úr
járnbentri steinsteypu, og svo rammgert, að það endist í eitt
til tvö þúsund ár! Ef hús þessi eru byggð á stöðum, þar sem
síðar þarf að rífa þau burtu, þá er það ærið kostnaðarsamt og
oft nærri ógerningur. Og þegar jafnframt er tekið tillit til þess,
að sá, sem ræður fyrirkomulagi hússins og innréttingum, á
sjaldnast eftir að eiga heima í því meir en hálfan mannsaldur
eða kannski finuntugasta eða hundraðasta partinn af notkun-
artíma hússins, — og þá jafnframt haft í huga, að kröfur manna
til fyrirkomulags og þæginda eiga eftir að gerbreytast á næstu
árum (að ekki sé sagt öldum!), en ærin þörf fyrir okkar þjóðar-
auð til ýmissa nytsamlegra og arðskapandi framkvæmda, þá
verður ljóst, að æskilegt er að finna aðferðir til þess að byggja
hús á ódýrari hátt og þannig, að þeim sé auðveldara að breyta.
Ég hef reynt að búa í bæði timburhúsi og steinhúsi og ég
fullyrði, að vel smíðað timburhús, sem er þétt, er miklu heilsu-
samlegra og þægilegTa til íbúðar heldur en steinhús, með
venjulegri einangrun.
Ég geri ráð fyrir, að þetta komi að einhverju leyti til af þeirri
hitageislun, sem á sér stað frá líkainanum til steinveggjanna og
er miklu tilfinnanlegri heldur en hitageislun frá líkamanum
til timburveggjanna. —
Ýmiskonar ný byggingarefni munu koma til sögunnar næstu
árin. Aðferðir hafa fundist til þess að gera tré mjög hart og
óeldfimt, og liin ágætu gerfiefni, svo sem mismunandi plastik-
efni, verða ábyggilega framleidd í stórum stíl í ýmiskonar plöt-
um og grinduin, sem auðvelt verður að setja saman.
Ýms þessara efna hafa mjög fagra liti, sem ekki dofna og
ekki þarf að mála ylir. Þau geta verið hörð og gljáfægð, og það
er auðvelt að halda þeim hreinum. Þau leiða illa hita og ein-
angra því vel fyrir kulda. Mér þykir líklegt, að hin gráu og
litsnauðu steinhús eigi eftir að hverfa smám saman en upp rísa
í stað þeirra hús, í öllum regnbogans litum, samsett af listræn-
um skilningi úr léttum, litfögrum þynnurn. Jafnframt munu
hinir leiðinlegu fangelsisgarðar, sem flestir byggja í kring um