Jörð - 01.12.1945, Page 122
326
JÖRÐ
SJÓSÓKN, eftir þá Erlencl Björnsson, hreppstjóra á Breiða-
bólsstöðum á Álftanesi og sr. Jón Thorarensen, er einnig
mjög merk bók um þjóðleg f'ræði, enda prýðilega út gefin af
ísafoldarprentsmiðju h.f. og ekki minna til kostað, að sínu
leyti, en Akureyrarbókanna fyrrgreindu. Eru 112 teikningar,
kort og ljósmyndir í bókinni, og liafa þau Eggert Guðmunds-
son, listmálari, og frú Marianne Vestdal, tengdadóttir Erlends,
gert teikningarnar, en Steinþór Sigurðsson kortin. Framan við
titilsíðuna er litmynd eftir Guðmund Einarsson, listmálara.
Ágætur pappír er í bókinni og letur stærra en gerist. Er bók
þessi því sérstaklega auðlesin rosknu iólki, sem gaman hefur
af að ril’ja upp liðna tíð. Hins vegar eru bækur senr þessar
mikils virði því fólki hinnar yngri kynslóðar, er kann því
betur að vita skil á jarðveginum, sent hún er upp úr sprottin,
því hér er geysimikill fróðleikur saman kominn um flest, er
snertir sjósókn feðra vorra, útbúnað og aðferðir. Enn fremur
eru í bókinni nokkrar skemmtilegar frásagnir um sögulegar
sjófarir, sagt frá hugsunarliætti, trú og lijátrú. En bókin byrjar
á frásögn um æskuheimili og byggðarlag Erlends Björnssonar
í þá daga. Mun Erlendur hinn merkasti maður og minnugur
vel, en rithæfni sr. Jóns Thorarensen og viti á þjóðlegum fróð-
leik Jrarf ekki að lýsa. — I bókarlok er nafnaskrá.
VÖLUSPÁ eftir E. Kjerulf, er einnig gefin út af ísafoldar-
prentsmiðju h.f. og mætti, frá almenningssjónarmiði, vel
hugsa sér, að sú bók sé merkust allra hinna merku bóka um
þjóðleg efni, sem út hafa komið á þessu ári. Höf. heldur því
sem sé fram, að hann hafi, — tit frá athugun, er prófessor Magn-
ús Olsen í Oslo skýrði einhverju sinni frá, en vakti litla at-
liygli, — fundið aðferð til að leiðrétta svo kveðskap í íslenzkum
fornhandritum, að hann þurfi tæpast skýringa við. — Væri það
hin mestu tíðindi, ef satt reyndist, Jjví fram að þessu hafa forn-
ritaskýrendur lítið haft við að styðjast í því el’ni annað en hug-
myndaflug, þjálfun og almennan kunnugleika á fornbók-
menntunum og norrænu máli, og álit hvers annars, á þessu
sama byggt, — en um einfalt aðferðakerfi, til að leiðrétta hand-
ritin til upphaflegrar myndar vísna og kvæða, mun ekki hafa