Jörð - 01.09.1946, Síða 61
JÖRÐ
59
bækur og lítur svo fram fyrir fætur sér? Á það er lagt hið
niesta kapp, að fræða æskuna sem bezt um allt hugsanlegt á
'hmni og Jörðu og þar á milli. Finnst æskunni það notaleg
veröld, sem hún kynnist? Fer um liana þægileg tilfinning ör-
yg'gis og ánægju? Eða eykur þekkingin kvöl liennar?
*
IJANÚARBLAÐI ameríska tímaritsins LOOK, þetta ár,
er birtur árangur af skoðanakönnun blaðsins með æskulýð
úndsins, viðvíkjandi nokkrum vandamálum. Samhliða þessu
stutta yfirliti er myndaflokkur og sýna myndirnar þætti úr
h'fi ungS manns, Tom Bergstedts, sem er aðeins 17 ára. Á
þessari stuttu ævi hans hafa gerst furðulegir hlutir. Á síðustu
i2 árum hans hefur hann verið sjónarvottur að viðreisnar-
starfi Roosevelts forseta og hnignun þess, séð á eftir þessum
sterka manni, hetju þeirrar kynslóðar í Ameríku, ofan í gröf-
ina, heyrt og skynjað fimm ára ógnir heimsstyrjaldarinnar,
seð tvo bræður sína ganga í herinn, annan frá nýstofnuðu
heimili, en hinn frá hálfnuðu menntaskólanámi. Og nú stend-
Ur hann undrandi á þröskuldi atómorku-tímabilsins.
».Ef Tom,“ segir LOOK, „og æskulýður Ameríku yfirleitt,
' trðist alvarlegur á svipinn, þá er það vegna þess, að vanda-
niál nútímans eru geigvænleg. Þótt æskan haldi fast við bjartar
'onir sínar og framtíðardrauma og fögnuð þann, er æskuorku
1 ylgir, sér luin hættuna framundan á veginum. Hvernig fer
Unr atómorkuna? Hvernig um samstarf og viðskipti Ameríku
' 'h umheiminn? Hvernig verða alþjóðavaldamálin leyst?
Hvernig verður atvinnuleysisvandamálið leyst, ráðið fram úr
hýrtíðinni og atvinnulífinu koinið í rétt horf?“
Tímaritið sendi spurningar sínar til æskumanna af báðum
hynjum víðsvegar um landið og fékk svör frá mörgum þúsund-
Uin æskumanna í Californíu, Maine, Colorado, Texas, Minne-
s°ta, Kansas og Oregon. Þetta voru aðallega gagnfræðaskóla-
nemendur.
Mikill fjöldi þessara unglinga óskaði eftir meiri aðstoð og
Hiðsögn viðvíkjandi vandamálum lífsins. 50 % óskuðu að fá
Hiðsögn hjá foreldrunum, 8 % kaus sér slíkrar tilsagnar hjá
hennurum sínuin, og enn færri hjá prestunum.