Syrpa - 01.01.1914, Blaðsíða 5

Syrpa - 01.01.1914, Blaðsíða 5
MÓÐIRIN 67 Ijósinu; þar haföi hún leikið sér á bökkunum með bróöur sínutn. Litli stígurinn, sem líi frá garðshliðinu niður að mjólkurhúsinu, sást greini- lega — hún þekkti og elskaði hverja bugöu á honum, því að hann gekk hún á hverjum morgni þegar hún var að sækja rjómann. Henni sýndist lífið svo bjart og yndislegt, og það var sem hjarta hennar kólnaði og stirnaði, er hún hugsaði um dauðann. Hún sneri sér við á augabragði og hljóp grát- andi inn í húsið. Seinna unt nóttina gekk eldri systirin út í garðinn og mætti þar dauöanum. ,,Eg bíð“, sagði hann. ,,Eg skal fara með þér“, sagði hún hugrökk. ,,Eg er kjarkgóð og þori að mæta þér fyrir bróður minn. Við höfum leikið okkur sarn- an, og við höfurn lesið á sömu bók- ina, eg hefi kent honum þaö litla sem eg veit; og ætla að fara með þér í hans staö“. Dauðinn rétti aftur út hönd sína. Þá fór hún alt í einu að hugsa um hvað hún var að gera. Hún stóð á takmörkum lífs og dauða. En lít' hennar var ekki eingöngu fyrir hana sjálfa. Kjarkurinn dvínaði, þegar hún fór að hugsa um hverju hún ætlaði að fórna. Hvað tnundi verða urn elskhuga hennar ? Skógarrunn- arnir í kring um kirkjuna, dimm- rauöir í næturhúminu, mintu hana á leyndardómana sem bundnir voru við skugga þeirra. Þar höfðu þau kyst fyrsta kossinn, kossinn sem gerði líf þeirra svo dýrmætt og sælu- ríkt. Þarna yið hlið hennar var rósatréð, sem hún hafði slitið af rauðu rósina, sem hafði verið tákn ástar hennar til hans, þegar hún þorði ekki að tala um hana. Drengurinn sem lá þarna inni, þekti ekki þessa laðandi lífsgleði, svo að hann gat ekki saknað henn- ar. Ilmurinn í garðinum heillaði hana; smárinn, mignonettan, nell- ikan og rósin sendu sæta angan svölu næturloftinu, þær voru eins og mjúkir hlekkir sent bundu hana við þessa jörð, sem hún unni svo mikið. Hún þagði og sneri sér við, augu hennar flutu í sorgartárum, en hana langaði til að lifa. Seinast fór móðirin út, um dag- renningu, er hún hafði kallað á hina til að vaka hjá drengnum sínum. Augu hennar vorn svo full af tárum að hún sá ekki dauðann undir eins. ,,Ó,“ hrópaði hún og studdi höndunum að brjóstinu, ,,ertu kom- inn að sækja hann?“ ,,Eg kom til þess að taka líf ein- hvers í þessu húsi,“ sagði dauðinn. Þá glaðnaði yfir móðurinni, og hún mælti brosa.ndi og blátt áfrarn: ,,Eg er tilbúin“. Dauðinn rétti út hendina. ,,Má eg ljúka verki mínu áður en eg kem til þín?“ spurði hún. ,,Eg skal bíða,“ sagði dauðinn. Þá fór móðirin inn í húsið og leit eftir hvort alt væri þar í röð og reglu. Svvi lét hún bækurnar sínar og lyklana inn í herbergi eldri dótt- ur sinnar. Og síðast fór hún inn í herbergið, þar sem sonur hennar lá og horfði lengi á hann. Hvorki maður hennar né dætur þorðu að yrða á hana. Þegar hún horfði á drenginn sinn, mintist hún hans, er hann hafði fyrst veriö lagður í faðrn hennar nýfæddur; og þegar hún
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.