Syrpa - 01.01.1914, Page 9

Syrpa - 01.01.1914, Page 9
JARÐSTJARNAN MARS 71 Hitt tungliö er nefnt Phobos, það er að eins 3,750 mílur frá yfirborði Mars. Phobos ferðast einu sinni kringf um Mars á 7 kl. 39 mín. Mars snýst um íis sinn á 24 kl. 37 mín. Phobos fer því þrjár umferðir kring um Mars á hverjum degi. Mars- búum myndi því sýnast Phobos rísa í vestri og setjast 5| kl. síðar í austri. Tungl þessi sjást að eins í góCum sjónaukum. III. Ef Iitiö er á Mars með berum augum er hann rauðleitur að sjá. Sé hann athugaöur með sjónauka sjást á yfirborði hans dökk-grænir blettir og oft sjást stórirhvítir blett- ir sem hylja heimskautalönd stjörn- unnar. Dökku blettirnir breitast lítiö sem, ekkert. En hvítu blettirn- ir eða ,,pól‘‘-blettirnir, eins og þeir nefnast, stækka og minka og h verfa stundum algerlega. Þessar'breyt- ingar virðast háðar ftrstíðunum á plánetunni. Þegar miður er vetur á öðrum hnatthelmingnum er pól- bletturinn þeim megiu sem stærst- ur. Þegar vorar smá minkar hann uns hann nærri hverfur, eða hverf ur algjörlega. Herschel áleit því að pólblettirnir væru myndaðir af snjó sem félli á vetrunum og bráðnaði svo að sumrinu. Ef við tökum til dæmis norður-helming jaröarinnar, vitum við að um hávetur nær snjó- cg ísbreiðan langt suður eftir hon- um. Að sumrinu verður þetta svæði tiltölulega lítið. Það er því mjög líklegt að á jörðinni sæust pól-blett- ir, sem stækkuðu og minkuðu eftir árstíðum, ef hún væri athuguð frá Mars. Ef þessir póljblettir ft Mars eru sjnór þá hlýtttr að vera vatmsgufa í loftinu umhverfis hann. Að svo sé er enn ekki sannað. Menn hafa reynt að nota litsjána (spectro- scop) til að komast fyrir hið rétta, en útkoman veröur ekki sú sama hjá öllum. Huggins ogVogelgerðu fyrstu tilraunirnar 1867 og enn aðr- ar 1873. Þeir komust að þeirii niðurstööu að Mars hefði gufuhvolf sem væri mjög likt gufuhvolfi jarð- arinnar. Keeler og Campbell hafa gert margar og nfikvæmar athug- anir og niðurstaða þeirra er sú að vatn sé ekki til fi Mars hvort heldur sem vökvi eða gufa. Nýlega voru tilraunir gerðar við Lick stjörnu- turninn nteð enn nákvæmari verk- færum og benti úlkoma þeirra á að Keeler og Campbell væru réttir. Vorið 1908 tókst V. M. Slipher við Lovvell stjörnuturninn, í FlagstafiF að búa til mjög næmar myndaplötur og tók hann með þeim myndir af litbandi tunglsins og litbandi Mars. Tunglið hefir ekkert gufuhvolf — vatn er þar ekki til. Vatnsgufu- rákirnar í litbandi tunglsins myndu því orsakast af vatnsgufunni ígufu- hvolfi jarðarinnar. Iif vatnsgufaer til í gufuhvolfi Mars ættu því rák- irnar sem tilheyra henni að vera skírari í litbandi Mars en í litbandi*) tunglsins. Þetta tókst Slipher að sýna. Samt sem ftður er það víst að þar er mjög lítið um vatn. Ef pól-blettirnir eru snjór þá hlýt- ur að vera nógu mikill hiti ft Mars til að bræða hatin úr því blettirnir minka og hverfa. Að svo sé er *) ,,Litband“, ,,l.itbandsrákir“. — Ef lesariim æskir frekari útskýringa á þess- um orðum er honum bent á hina ágætu ritgerð dr. phil. Agústs Bjarnasonar í Skírnij 3. og 4. hefti 1910, meðfyrirsögn- inni:, ^Efniíílíenninyin Nýja“.

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.