Nýjar kvöldvökur - 01.01.1934, Blaðsíða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1934, Blaðsíða 27
MONA 21 Það líða nokkrir dagar. Burtfarar- kvöld Robbies er komið. Heimilisfólkið kveður hann með tedrykkju í eldhúsinu. Gamli maðurinn situr við endann á langa borðinu og vinnumenn og vinnu- konur hvort til sinnar handar, en Mona gengur um beina, eftir siðvenju Manar- búa. Robbie kemur hlaupandi í einkennis- búningnum sínum ofan stigann. Svo mik- ilfenglegan hefur Mona aldrei séð bróður -sinn. »Verið þið sæl, öll, verið þið sæl«! Mona fylgir Robbie niður að hliðinu. Hún hefur tekið undir handlegg hans, gengur hægt með löngum skrefum og tal- ar í ákafa um stríðið. Hann á að drepa fjölda Þjóðverja. Þessi kvikindi, þessir óþokkar! Bara að hún hefði getað’farið með honum. Frá veginum heyrist samstiga fótatak. Það er flokkur einkennisbúinna manna, sem koma frá námubæ uppi í fjöllunum og eru á leið til stöðvarinnar. Þeir syngja »Tipperary« hástöfum. Robbie slæst í för með þeim, og Mona stendur kyrr og horfir á eftir honum, þangað til hann hverfur á bak við trén hjá Patrickskirkj- unni. Þá snýr hún hægt heimleiðis. Faðir hennar er háttaðui', dapur í skapi. Tveir mánuðir eru liðnir. Mona stjórn- ar heimilinu, og allt gengur að óskum. Einu sinni í viku kemur bréfspjald frá Robbie. Framan af eru tilskrifin glaðleg, jafnvel fagnandi. Stríð er hressandi í- þrótt og mjög æsandi. Bráðum verður hann sendur á vígstöðvarnar. Síðar koma bréf frá Robbie, og þau eru alvörufyllri, en þau mega samt ekki bera neinar á- hyggjur út af honum heima. Honum líð- ur allvel. Það getur ekki liðið á löngu, áður en þeir yfirbuga þessa þorpara, og hann kemur þá heim fyrir jðlin. Kvöld eftir kvöld situr gamli maðurinn við arininn og les upphátt í ensku blaði fyrir Monu og vinnufólkið. Áður hefur hann aldrei lesið annað en vikublað eyj- arinnar og biblíuna. Það eru hryllilegar fréttir af hryðju- vei'kum Þjóðverja í Belgíu. Mona er æst. Hversvegna eyðir guð ekki þessum kvik- indum af jörðinni? Það mundi hún gera, væri hún guð. Gamli maðurinn situr þegjandi. Þegar sá tími kemur, er hann á að lesa í Nýja-testamentinu, treystir hann sér ekki til þess og háttar. Vegir forsjónarinnar eru órannsakanlegir. Eng- inn getur útskýrt þá. Veturinn harðnar. Það er kvöld, og úti geisar ægilegt illviðri. Gamli maðurinn les upphátt um stórkostleg svik í London. Þjóðverjar þeir, sem þar eru búsettir, og enskir borgarar álitu heiðarlega og vin- sama, hafa orðið uppvísir að lúalegum njósnum. Það hefur verið gerð loftárás á London, og þótt enginn maður biði bana er það augljóst, að Þjóðverjar þar hafa gefið merki, »Hversvegna lætur ekki stjórnin varpa þeim í fangelsi?« segir Mona. »öllum þessum hræsnurum! Þessum svikurum! Þessum launmorðingjum«! Gamli maðurinn, sem hafði opnað bib- Iíuna, lætur hana aftur og gengur upp á loft. »Þú ert harðbrjósta, stúlka mín. Þú ert harðbrjósta«, segir hann. 2. KAPITULI. Jólin eru löngu liðin. Vorið er komið, korninu sáð og nautgripunum aftur sleppt til beitar eftir vetrarlanga inni- stöðu í fjósinu. En stríðið geisar enn, og Robbie er ennþá ekki kominn heim. Það er bjartur vormorgunn. Mona kemur akandi frá Peel í kerru sinni og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.