Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Blaðsíða 26

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Blaðsíða 26
12 FJÖGRA MÁNAÐA DVÖL í DRAUGAHÚSI N. K.v. tók því ólíklega. Hvorugt okkar tók atburð þennan hátíðlega, og eftir að hafa skipzt á um hann nokkrum orðum létum við talið falla niður. Kvöldið eftir sátum við bæði í dagstof- unni á neðri 'hæð hússins. Þegar klukkan var hér um bil 10 heyrðum viðsama hljóðið rétt fyrir utan dyrnar, nálægt þrem metrum frá sæti mínu. bað voru slegin 10—12 högg með nokkurra sekúnda millibili, og hljóðið var nákvæmlega eins og pjakkað væri með göngustaf í tíglagófið. ,,Þetta var það, sem eg heyrði í gær,“ hróp- aði Helen. Eg greip vasaljósker af arinhill- unni og þaut fram að dyrunr. Rétt áður en eg svifti hurðinni opinni hættu höggin. Einni sekúndu síðar, kom eg fram í anddyr- ið og lýsti um það allt nteð vasaljósinu. En ekkert sást, Itvorki maður né dýr, eða nokkr- ar minjar um lifandi veru. Og ekkert rauf næturkýrrðina. Sams konar at\ ik gerðist oftlega um sum- arið, og ætíð á nákvæmlega sama hátt. Eg hygg að við hö'fum heyrt þessi högg um 50 sinnum. Þau heyrðust ætíð á kvöldin, og í liver þrjú skipti af fjórum ttm 10-leytið. Það er ástæðulaust að lýsa þeim nánar, því að þetta gerðist ætíð á sama hátt. Við reyndum með öllu liugsanlegu móti að komast fyrir, hvaðan hljóðið kom. Hvað eftir annað grandskoðuðum við hvern ein- asta stein í anddyrinu. Mörg kvöld stóð eg á verði við dyrnar um 10-leytið. En þótt högg- in byrjuðu, hættu þau jafnskjótt og eg opn- aði hurðina, og aldrei sést neitt, sem hefði getað valdið þeim. Loks hættum við að sinna þessu, því að þá voru enn dularfyllri viðfangsefni komin til sögunnar. Áður en eg skýri frá þeim, verður að geta nokkurra einkennilegra smáatvika, því að eg vil rekja atburðina í réttri tímaröð. Fyrst skal getið þriggja atburða, sem eg var einn heyrnarvottur að. Þeir gerðust allir aðra vik- una, sem við dvöldumst í húsinu, og í öll skiptin einni eða örfáum mínútum eftir að eg hafði lagzt til svefns. Eg hafði rétt lagt höfuðið á koddann fyrsta kveldið, þegar eg heyrði hljóð líkast því, að eldspýtustokkur hefði fallið af nátt- borðinu á gólfið. Eg held að eg hefði Jrorað að vinna eið að því, að svo hefði verið. Að minnsta kosti heyrði eg greinilega, að eitt- hvað féll niður. En þar sem eg ekki gat séð ástæðu til þess, að nokkuð dytti, reis eg upp og kveikti, til Jress að sjá, hvað væri á seyði. En á gólfinu var ekki nokkur skapaður hlut- ur. Eg leitaði uim allt herbergið, gætti undir náttborðið og stólana og meira að segja hugði inn í klæðaskápinn. En enginn hlutur hafði dottið á gólfið. Næsta kvöld heyrðist hljóð, líkast Jtví, að dagblað fyki þvert yfir gólfið. í Jretta sinn var hljóðið einnig svo greinilegt, að enginn vafi gat á Jrví leikið. En enginn blaðsnepill var í herberginu, og ekki heldur minnsti súgur. sem hefði getað feykt pappífsblaði úr stað. í Jrað skipti leitaði eg um alla efri hæð hússins, en fann ekkert, sem til greina gæti komið. Þriðja kvöldið heyrðum við enn hærra og einkennilegra hljóð. Eg var naumast full- háttaður, þegar eg heyrði einhvern skruðn- ing, sem líktist Jtví helzt, að brauðkefli félli á gólfið og ylti síðan áfram þvert yfir her- bergið, unz það skall í veggnum hinum meg- in. Eg Jraut á fætur og lýsti um herbergið. Enginn hlutur lá á gólfinu, og hvergi sáust nokkur merki þess, að hlutur hel'ði færzt úr stað. Eg býst nú \ ið að einhver Iesenda mintra l'ari að gefa í skyn, að hér háfi rottur verið á ferðinni. Eg hefi ekki fram að þessu sagt mörgum Jressa sögu, en þeir hafa allir ein- hvern tíma, meðan þeir hlýddu frásögn minni, stungið upp á rottum eða músum. En eg vil í því sambandi benda á, að eg héfi haft náin kynni af rottum og músum og öllu þeirra framferði, þruski, nagi og tísti, en eg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.