Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Page 44

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Page 44
30 DYVEKE N. Kv. „Kristján konungur kemur ekki aftur til Oslóar,“ svaraði Albrekt; ,.hann fer nú til Kaupmannaliafnar, lil þess að kjörið verði staðfest og hyllingin fari fram. En eg kem meðþau boð ti! Sigbritar Willums og yðar, frú Dyveke, að þið farið sem fyrst af stað til Danmerkur og setjist að á konungsgarð- innum Hviteyri, sem er rétt utan við Kaujj- mannahöfn. Hans náð bað mig að segja, að liann hefði ekki tíma til að skrifa bréf um þetta; þið skylduð treysta minni forsjá og leiðsögu til Danmerkur. Um leið og eg hélt af' stað hingað, var sú skipun send til Kaup- mannahafnar, að búa allt undir komu ykkar til Hvíteyrar.“ „Þetta voru mikil tíðindi," mælti Sigbrit hugsandi. „Víst er svo,“ svaraði Alibrekt. „Hans náð var mjög alvarlegur, þótt hughraustur væri, og bað mig að lokum að bera kæra kveðju sína til frú Dyveke. — Nú fer liann fyrst með lík Hans konungs lil Hróarskeldu, þar sem á að jarða það í Grábræðra-kirkjunni. Svo leggur hann leið sína til Kaupmanna- hafnar, þar sem þér hittið liann. En ef þér getið, Sigbrit, þá sknlum við halda af stað svo fljótt, sem unnt er. Þér vitið, hve óþolin- móður konungur er, og hann r-eiðist mér, ef þið verðið ókomnar, þegar liann kemur.“ „Eg er tilbúin eftir þrjá daga,“ mælti Sigbrit. „Eigum við ekki að segja tvo?“ svaraði hann. „Þið getið líklega varla haldið af stað á morgun? Hér í Osló veit enginn enn um lát Hans konungs, og eg lteld það væri bezt, að enginn vissi um það fyrr en við værum komin úr bænúm.“ Sigbrit kinkaði kolli og stóð á fætur. Albrekt von Hohendorf gekk ofan að höfn til að útvega far á skipi, sem var á förum til Kaupmannahafnar. Sigbrit tygjaði þær til ferðar. Edle grét út af öllum þeim dásemdum, sem þær urðu að skilja eftir, en Dvveke hugsaði ekki urn annað en dúfurnar sínar. Hún fékk að taka þær með sér, þó að Sigbrit bölvaði þeim í sand og ösku. Hún kom þeim fyrir á skip- inu, þar sem þær voru í skjóli fyrir kulda og stormi. Svo gengu þær mæðgur á skip, ásamt Edle og Albrekt von Hohendorf. Edle óð elginn o O um allar nýungarnar, sem biðu þeirra í Kaupmannaliöfn. Sigbrit var lremur þögul og þungtlnigsandi, en við og við spurði hún Albrekt inn rnenn og málefni á þeim slóð- um, þar sem þær áttu að se-tjast að. Dyveke bar kvíðboga í brjósti. „Hvers vegna ertu að gráta?“ spurði Sig- brit reiðulega. „Þú verður að gæta þess, að augun í þér verði ekki rauð og þrútin, því að jaá snýr konungur baki við þér.“ „Eg er hrygg, af því að nú er bezti ham- ingjutími ævi minnar á enda,“ sværaði Dy\ eke. „Dagana í Osló fæ eg aldrei að lifa upp aftur.“ „Nú eru stórkostlegri dagar fyrir hendi," svaraði Sigbrit; „menn eiga að vaxa með örlögum sínum eða týmast ella.“ ÞRIDJI ÞÁTTUR 19. kap. Konungsgarðurinn á Hviteyri. Hallarstjórinn í konungshöllinni í Kaup- mannahöfn, sem hér Esge Bilde, fékk bréf frá Álaborg, Jaar sem Kristján konungur bauð honum að gæta vel hallarinnar og borg arinnar. svo að engir óvinir konungs kæmu að honum óvörum. Hann sat einmitt í her- bergi sínu í höllinni með einum hirðmann- anna, Torben Oxe, og var að tala um þetta bréf og hver konungur gæti ímyndað sér að færi að ráðast á Kaupmannahöfn, en rétt í þeim svifum kom Ieyniboði með nýtt kon- ungsbréf. í því bréfi bauð konungur honum að sjá um, að konungsgarðurinn á Hvíteyn yrði dubbaður upp í skyndi handa hol- lenzkri konu, Sigbrit Willums að nafni, og dóttnr hennar; mundu þær koma frá Osló í fylgd með Albrekt von Hohendorf. Sagði hann honum svo fyrir, að ekki mætti á neitt

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.