Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Qupperneq 27

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Qupperneq 27
N. Kv. FJÖGRA MÁNAÐA DVÖL í DRAUGAHÚSI 13 bið lesandann að bíða þolinmóðan, unz lengra er komið sögu minni. Næsta hljóðfyrirbrigði, sem við veittum athygli, var ekki sérlega hávært, en það heyrðist því oftar. Við heyrðum það bæði samtímis og hvort í sínu lagi, rnörg hundr- uð sinnum yfir sumarið. Það heyrðist á öll- um tímum dags og í öllum herbergjum húss- ins, bæði í útveggjum og skilrúmum. Hljóð þetta heyrðist svo oft og víða, að við nefnd- um það „veggjatitluna". Þá vil eg skýra frá enn einkennilegra fyrir- brigði. Hafi lesandinn vænzt þess, að heyra um dularfult fótatak, verður hann ekki fyrir vonbrigðum, því að fótatak heyrðist hvar- vetna í húsinu. Þess varð fyrst vart þriðju vikuna, sem \ ið bjuggum þarna, og heyrðist síðan alltaf við og við. Stundum heyrðist það þt'isvar eða 'fjórum sinnum sama sólarhring- ’nn á degi eða nóttu, en stundum leið svo úeil vika, að það lét ekki á sér bæra. Alls hygg eg við höfum heyrt það um fjörutíu ■smnum meðan við bjuggum í húsinu. Hér gat ekki verið um nokkra misheyrn nð ræða. Þér skuluð ekki halda, að þetta hafi verið óglöggt tif í einhverju skúmaskoti í itúsinu. Nei, þvert á móti. Fótatakið var mjög áberandi, líkt og þegar fullorðinn !r'aður þrammar áfram á þungum leður- bnöllum, og fótatakið heyrðist við nefið á °kkur að kalla mátti. Það var aldrei eins og væri læðst eða tiplað á tánum. Engum, sem beyrði hljóðið í fyrsta sinn, gat blandast hug- llr um, að einhver væri á íerli í húsinu. Til lrekari skýringar skal eg segja dálitla s°gu, eina af mörgum, er gerðust í sambandi þetta fótatak. Meðal kunningja okkar 'ar nng stúlka, við getum kallað hana Maríu Sniith. Hún var heimagangur ltjá okkur og gekk oft inn óboðin, án þess að drepa á dyr. b^g nokkurn þegar Helena sat við vinnu •s'na uppí á loftinu, heyrði hún, að komið ' ar inn í húsið og tekið að ganga um niðri. lun liélt að þetta væri María og kallaði til hennar, en enginn svaraði. Hún gekk því niður. Fótatakið hætti jafnskjótt og hún kom niður í stigann, og Jtegar niður kom var þar enga lifandi sál að sjá. Þegar Jrarna var komið, því að þessi atburður gerðist er nokk- uð Var áliðið dvalartímans, vorum við orðin vön „Jressu ósýnilega" og öllum þess uppá- tækjum, og kölluðum Jaað „drauginn“ okk- ar. Helena varð Jtví ekkert undrandi, þótt hún sæi engan, Jrar sem hún hafði heyrt gengið um fyrir andartaki, það var svo sem engin nýlunda. Hún tautaði eitthvað um að „draugurinn" væri enn á ferðinni með lu ekkjabrögð sín, og fór síðan upp aftur og settist að vinnu sinni. Ekki var hún fyrr setzt niður, en þetta ósýnilega fór að ganga um á ný á neðri hæðinni, nákvæmlega á sama hátt og áður. Nú læddist Helena hljóðlaust nið- ur stigann, en allt fór á sömu leið, fótatakið hætti, og húsið var tómt. Helena fór upp að nýju, en leit þó fyrst gaumgæfilega eftir, hvort nokkur væri í garðinum, en þar var vitanlega enginn. Þegar hún var setzt að nýju, heyrði hún enn nmgang niðri í húsinu. En í þetta sinn skeytti hún honum engu. Það hafði hvort sem er ætíð reynst þýðingarlaust, að reyna að læðast að „þessu ósýnilega", um það vor- um við bæði búin að sannfæra okkur. Hún Iét því sem ekkert væri. En í Jretta sinn heyrði hún sagt í sömu andránni: „Ert þú uppi að vinna?“ Og nú var það María Smith, sem var á ferðinni. En einmitt þetta sann- færði Helenu nm, að engan mun var hægt að heyra á fótataki „draugsins" og lifandi manns. Stórkostlegasta hljóðfyrirbrigðið var svo hávært, að það hefði getað heyrzt nokkra kílómetra. \;ið nefndum Jrað „píanóbrest- inn“. Við heyrðuin Jrað fyrst um mitt sumarið. Við sátum inni í dagstofunni, er við heyrð- um skarkala úti í bílskúrnum. Hann var svo mikill, að við fengum lokur fyrir eyrum, og engu var líkara en húsið léki á reiðiskjálfi. Hávaðinn var líkastur því, sem öllum fótum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.