Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Síða 46

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Síða 46
32 DYVEKE N. Kv. Þeir gengu gegnum eplagarðinn, þar sem trén voru að byrja að skjóta hnöppum, því að liðið var að marzlokum og blíðskaparveð- ur. Úti á brekkubrúninni benti Hrólfur Madsen út á sjóinn; þar lá skip, sem virtist vera að varpa akkerum. „Þetta skip er norskt," mælti hann. ,,Ver- ið getur, að á því séu þau, sem við búumst við hingað.“ Þeir stóðu við sttundarkorn og störðu. Skipið var alveg uppi við land og á þilfarinu var fullt af fólki. Þá var bátur settur út og nokkrir menn látnir síga ofan í hann. „Hver skrambinn," sagði Hrólfur Madsen og herrndi eftir konunginum. „Það eru þau. Eg þekki Albrekt von Hohendorf, sem er dreissugri en stallarinn, af því að hann er af aðli kominn. Innan stundar verður allt frilluhyskið setzt að á garðinum." „Gættu tungu þinnar," mælti Hans Faa- borg. „Skynsamlegra er að komast fyrir, hvort hundurinn bítur, áður en slegið er til lians.“ Hann hljóp niður að lendingunni ásamt þjóninum, og að stundarkorni liðnu kom ferðafólkið á land. Sigbrit var mjög dösuð eftir sjóferðina. Hún settist þarna á stóran stein og sagðist ekki fara lengra. „Það var illa gert af yður, Albrekt, að skjóta okkur á land hér á auðri strönd,“ sagði hún. „Eg sé hér hvorki hús né bæ, en tómt vatn og tré. Mér kemur það líka spánskt fyrir, að hans náð tekur ekki á móti okkur eða einhverjir af mönnum lians.“ Hans Faaborg gek'k lram og hneigði sig auðmjúklega. „Eg er hér af hálfu lians náðar,“ rnælti liann, „og konungsgarðurinn er hér fá skref í burtu; þar er allt viðbúið að taka á móti yður.“ „Hvaða maður eruð þér?“ spurði Sigbrit og hvessti á hann augun. „Hans Faaborg, frii mfn, óbreyttur rit- ari í höll konungs, trúr þjónn hans náðar og honum liandgenginn.“ Sigbrit horfði svo lengi á hann, að hon- um þótti nóg um. Þé leit hún á Hrólf Mad- sen og þekkti hann um leið. „Eg þekki liann þarna,“ mælti hún. „Komdu hingað, maður, og taktu til hönd- uniim, svo að við komumst upp þessa bölv- aða brekku. Ef þetta land er fullt af klett- um eins og Noregur, þá vil eg ekki dveljast hér til kvölds. Eg hélt, að Danmörk væri fagurt sléttlendi eins og Holland og önnur kristin lönd.“ „Svo er líka,“ svaraði Albrekt von Hohendorf. „Þegar þér komið upp á kon- ungsgarðinn, þá munuð þér líta fagra akra og skóga. Þér megið ekki heldur láta yður mislíka, að eg lét yður stíga hér á land. Ef konungur er ekki í borginni, er bezt við verðum hér kyrr og bíðum nánari boða frá lionum." „Konungur er ekki í borginni,“ mælti Hans Faaborg, „en búizt er við honum á hverjum degi. Hann hefur mælt svo fyrir, að konungsgarðurinn á Hvibeyri sé fenginn Sigbritu Willums og dóttur hennar til íbúð- ar, og býst eg við, að þið séuð þær. Á garð- inum er allt viðbúið því, að þið setjist þar að.“ „Komum þá,“ mælti Sigbrit. Hrólfur Madsen og Albrekt von Hohen- dorf tóku livor undir sinn arm hennar og tosuðu lienni upp brekkuna. Hans Faaborg stóð og glápti á Dyveke, sem var að tala við F.dle. „Vertu hjá mér, þangað til dúfurnar mín- ar eru komnar í land, Edle,“ sagði hún. Rétt á eftir kom á land búrið, sem þær voru í. Þær hnipruðu sig saman dauðhrædd- ar, og Dyveke lagðist á linén og talaði blíð- lega til þeirra. Sjómennirnir báru þær upp brekkuna; Dyveke galt þeim vel fyrir greið- ann, en þeir þökkuðu fyrir og báðu henni blessunar. Edle var gröm yfir því, að þær skyldu

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.