Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Page 53

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Page 53
N. Kv. DYVEKE 39 ætlið að ljóstra einhverju upp, þá reiðið þér yður fremur á mitt ráð en Sigbritar. En þér hafið ef til \ il 1 svarið henni tryggðir líka?“ Diðrik Slaghök ætlaði að svara, en kon- ungur bandaði hendi frá sér og sneri baki við honum. Þá hneigði hann sig djtipt og gekk út ánægður á s\ ip. Stundu síðar sat hann í sérherbergi Sig- britar Willums á H\ íteyri. „Mikil tíðindi, frænka," mælti hann, laf- móður eftir sprettreiðina þangað; ,,hvað fæ eg fyrir, ef eg segi yður það, sem eg veit?" „Ef þú hefur sprengt hest fyrir konungi í von um umbun, þá hefir þú farið flónslega að,“ svaraði Sigbrit. „Ef eitthvað er í frétt- ina \ arið, þá gef eg þér upp einn dal at' þeim sjt), 'sem þú skuldar mér. En eg kaupi ekkert úséð og sízt af þér, Diddi litli.“ „Konungurinn ætlar að kvænast," mælti Diðrik. Sigbrit hló, og systursonur hennar minnt- lst þess ekki að liafa nokkurn tíma heyrt hana hlæja s\ o lengi. Það brakaði í henni og hrast, henni \öknaði um augu og hún hélt ;ifram að hlæja ennþá meira \ ið furðusvip- inn á Diðrik. „Vissuð þér það, frænka?" spurði hann. »Ef þér halið vitað það, þá eruð þér eins ijölkunnug og af er látið. Eg var í ríkisráð- mu með hans náð og fór þaðan fyrir stundu. Dve Bilde stakk upp á því, og eg þori að 'eggja hausinn á mér í veð fyrir, að það kom ilatt upp á hans náð.“ „Svo — já, drengur minn,“ sagði Sigbrit og þnrrkaði sér um augun. „Þú skalt fá dalinn. Eghlæ rnest að heimsku manna. Allir mættu halda, að þú þekktir Sigbrit Willums nokk- nrn veginn; og svo heldur þú, flónið þitt, að eS Dafi ekki verið viðbúin því, að konungur hvæntist. Eg hefði \ erið meiri bjáninn, ef eg helði ekki vitað það og hagað mér eftir því.“ „Hvað ætlizt þér þá fyrir?" spurði Diðrik. „Eg ætla að ýta á hann,“ svaraði hún hægt; »hvað er um annað að géra? Ef hann hefði ehki fundið upp á því sjálfur, þá hefði eg orðið að ráða honum til þess. Getur liann vernð öruggur í sessi, nema hann eignist erf- ingja?“ „Sama sögðu þeir í ríkisráðinu," mælti Diðrik. „Jæja, sögðu þeir það?“ sagði Sigbrit. „Blindar hænur rata líka á kornið.“ „En Dyveke? Hvað verður um hana?“ spurði Diðrik. „Um hana, já?“ mælti Sigbrit í hæðnis- róm. „Ætlast þú til, að hatur verði á hana lagt hvervetna, vegna þess liún hamli kvon- fangi konungs- Eða ætlast þú til, að hans náð kvænist náfrænku Diðriks Slaghöks? Mikill blessaður bjáni geturðu verið, drengur!“ Hún ýtti stólnum aftur á við, svo að liún gat rétt úr fótunum og stutt hökunni á staf- inn. „Nei,“ mælti hún; „ef hans náð leitar minna ráða í því máli, — og hann gerir það líka —, þá skal eg ráða lionum heilt, eins og eg er vön. Eg hef oft hugsað um þessi efni og þær höfðingjadætur, sem til greinagetakom- ið. Eg hef valið hana, og þú mátt sveia þér ttpp á það, að það verður hún.“ „Hverja eigið þér við, frænka?“ spurði hann. „Eg á \ ið Elísabetu frá Burgund,“ svaraði Sigbrit, „og ef þig langar til að lepja það í hans náð, þá skaltu ekkert setja það fyrir þig mín vegna. Þá er hann viðbúinn því, þegar hann kemur, og þá gengur allt liðugar." „Sigbrit frænka," mælti Diðrik í aðdáun- arróm; „þér eruð merkiskona, svo að enginn karhnaður er yðar jalnoki. Herrarnir sögðu þetta sama í ríkisráðinti." Sigbrit skellti aftur upp úr; en um leið lyl'ti hún sér í sætinu og hlustaði. Úti heyrð- ist jódynur. „Það er konungurinn," mælti hún; „heyrðu til. hann er á hraðri ferð. Hann kemur til þess að sækja sér drottningu til Sigbritar." Diðrik Slaghök stökk á fætur, náfölur og titrandi.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.