Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Síða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Síða 24
18 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Blake rak upp undrunaróp. Þetta voru alt merkir menn. »Larubio og fjelagar hans voru einungis verkfæri þessai-a manna. Þeir borðuðu miðdegisverð hjá Fahrbacker hinn 15. október og fóru það- an í leikhúsið, þar sem þeir ljetu mjög á sjer bera. Þaðan fóru þeir niður í bæ og Ijetu handtaka sig þar — viljandi — á sama tíma og morðið var framið til þess áð geta sannað fjarveru sína. Samt sem áður voru það þessir menn sem lögðu á ráðin með morðið og þeir eru jafn sekir níðingum þeim, er framkvæmdu verkið. Þegar þjer hafið handtekið þessa menn, hafið þjer náð öllum, sem sekir eru í morðmáli þessu, nema einum manni, Um hann get eg ekkert sagt yður. Jeg er hræddur um að jeg geti aldrei fundið hann því enginn þorir að ákæra hann«. Þetta voru fréttir, sem höfðu hina mestu þýðingu. Ákæra á hendur di Mar- co, Garcia, Bolla og Cardoni mundi vekja hina mestu æsingu í borginni. O’Neil var lostinn skelfi'ngu yfir kærunni. Borgar- stjórinn var vantrúaður, velferðarnefnd- in hikandi og úrræðalaus. En Blake á- byrgðist persónulega sannleiksgildi bréfs- ins og benti á, að brjefritarinn hefði sfetíð í fyrri skrifum sínum gefið rjettar upp- lýsingar; fjekk hann hina á sitt mál og ítalirnir fjórir voru handteknir. ítölsku blöðin í bænum urðu óð og upp- væg. Fangarnir bálvondir og' Norvin fann að hann var að missa traust það er hann hafði notið. Samt sem áður vann hann með óþreytandi elju, og hinn leyndar- dómsfulli bandamaður hans tók að vefa nýtt net af sönnunum utan um þessa nýju bandingja; gerði hann ekkert annað en framkvæma skipanir er honum voru skrifaðar. Þá skeði loks það, sem hann hafði lengi óttast — aðvörunarbrjef eins og þau, er tilkynt höfðu Donelly dauða hans og nú fór hann að liggja andvaka nótt eft- ir nótt. Dagarnir liðu í eilífum ótta og í stöðugum bardaga við að halda hræðsl- unni í skefjum. Hann fór að sitja þannig, að hann sneri til dyra, hann gekk fyrir götuhorn í stórum boga og forðaðist hlið- argötur. Hann óttaðist eigi framar að hann rjeði eigi við hræðslu sína, en hann kveið fyrir því að hann fjelli saman fyrir taugaveiklun og yrði ef til vill brjálaður. Líf vort er oft háð jafnvel lítilf jörleg- ustu smámunum. Augnablikskenjar, dutl- ungar, eða svikin loforð geta leitt fætur vora inn á leiðir, sem okkur hefði aldrei dreymt um. Þannig vildi það til, að Myra Nell War- ren ljet undan augnabliks dutlung að fara í heimsókn kl. 10 f. h. Ungfrú Warren skeytti ekkert um almennar venjur þegar því var að skifta og þess vegna fór hún þegar af stað í heimsókn til gamallrar franskrar konu, er bjó í franska hluta borgai'innar, án þess að skeyta um tím- ann. Frú La Branche var skyld Bernie langt frammi í ættum, svo langt, að engum datt í hug að rekja þá frændsemi, nema henni sjálfri, en hún hafði í þjónustu sinni elda- busku, sem var fræg fyrir matreiðslu. Nú hafði Myra Nell óþrjótancþ matar- lyst, og þegar henni alt f einu fanst, að lífshamingja hennar væri undir því kom- in, að hún þennan morgun fengi sjerstak- an mat, er eldabuska frú La Branche var sjerfræðingur í að búa til, þá var hún ekki lengi að velta málinu fyrir sjer. Hún setti upp hárið, setti upp fallegan hatt og hoppaði af stað til Esplanade strætis. Um nónbil sama daginn kom svartur drenghnokki með brjef til Norvin Blake. Hafði hann átt örðugt með að komast inn á innri skrifstofuna, en þó tekist. Norvin þekti skriftina og reif upp brjefið í skyndi og var tilbúinn að hlægja að einhverju nýju strákapari er Myra

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.