Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Blaðsíða 50

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Blaðsíða 50
44 NÝJAR KVÖLDVÖKUR af því að báðir vjelbátar Helga lágu á Nesvíkinni við stjóra, voru menn hrædd- ir um að þá mundi fylla af sjó, en Helgi vildi fyrir hvern mun bjarga þeim. Jeg eetla ekki að fjölyrða um þenna atburð, en á því kvöldi druknaði Helgi. Ekkjan var varla mönnum sinnandi lengi á eftir, enda sá hún fram á að hún mundi af eig- in rammleik aldrei geta haldið í horfinu svo umstangsmiklu búi. Það urðu ýmsir góðir menn til þess að rjetta henni hjálp- arhönd og annast viðskifti búsins, það sem eftir var vetrar. Um vorið bauðst henni ráðsmaður, Einar Haraldsson að nafni, sagður vanur bæði búskap og sjáv- arútvegi, og þótt hún þekti hann ekki persónulega, tók hún boðinu fegins hendi, því að kunnugir sögðu manninn bæði duglegan og vel að sjer. Hafði hann þá verið í Noregi nýverið og grætt eitthvað á síldarsölu og setti það upp, að hann mætti af eigin efnum leggja til hálfs i sjávarútveginn á móti ekkjunni; áttu þau að því leyti að vera í fjelagi, en landbú- skapur átti að rekast fyrir ekkjunnar reikning. Búið var gert upp, rjett áður en Einar tók við stjórninni; eignirnar voru þá metnar 18 þús. 300 kr„ þegar all- ar skuldir voru dregnar frá, og þó hefir annar matsmanna, Jón heitinn í Skóga- seli, skýrt mjer frá því að hús og bálar hafi verið virt mjög lágt. — Er þetta ekki rjett hjá mjer, Einar?« Einar lagði kollhúfur og þagði. »Svo kom Einar þessi og tók við stjórn- inni, mikill á velli og vasklegur og þótti mesti myndarmaður. Hann gekk um alt og skipaði fyrir eins og hann ætti alt einn, ekkjan þurfti ekki fyrir neinu að hafa og ekki bar á öðru en að hún væri ánægð með ráðsmanninn. Hann hafði mörg járn í eldinum og braskaði í ýmsu, sjerstaklega eftir að Norðmenn fóru að stunda síldveiði við fjörðinn. Þá þótti oft fjörugt við Nesvíkina og Nesheimilið gestrisið. Ráðsmaðurinn var yfirleitt í miklurn metum hjá fólki; hann hafði þann líkamsvöxt og fas, sem karlmenn bera virðingu fyrir hver á öðrum og hæfilegan ruddaskap til þess að kvenfólk- ið tæki eftir honum og þyldi honum meira en öðrum. Það var mikið um það talað, að hann mundi bráðlega verða húsbóndi í Nesi bæði í orði og á borði, en enginn vissi þó sönnur á því. Aðeins ein mann- eskja gat aldrei þýðst ráðsmanninn og það var drengurinn í Nesi; má vel vera að það hafi mest verið hans eigin sök, því að sagt var um þau systkini, að son- urinn hefði erft örlyndi föður síns, en dóttirin blíðlyndi móður sinnar. —- Á þessu ári skall yfir styrjöldin mikla og verð á lands- og sjávarafurðum þaut upp úr öllu valdi, veltan óx og margt var færst í fang, sem annars hefði -verið ó- gert. í Nesi virtust allir hlutir vera í upp- gangi og ráðsmaðurinn barst mikið á, enda fjekk hann einn öllu að ráða. Annað sumarið fór stundum að bera á því að hann tók sjer hressilega í staupinu og hagaði sjer þá oft heima fyrir líkast því sem húsbændur hans væru gustukafólk, en þess á milli fjell alt í ljúfa löð. — Svo var það skömmu fyrir jólin 1915, að Ein- ar fór í kaupstaðarferð hjer inn í Sand- vog á vjelbát og í förinni voru líka Rann- veig í Nesi og Norðmaður, sem átti lifr- arbræðslu við Nesvíkina og heitir Botten. Þá var Rannveig 17 ára gömul, lagleg stúlka og vel vaxin. Vilt þú ekki annars segja þenna kafla sögunnar, Einar, þú hlýtur að muna svo vel hvað gerðist á heimleiðinni og þegar heim kom?« »Haltu á þjer bölvuðum túlanum«, hvæsti Einar á milli tannanna. »Því þá það? Jeg bjðst við því að þú yrðir feginn því að segja sjálfur frá af- rekum þínum, svo að ekkert yrði mis- hennt. En jeg get svo sem tekið af þjer ómakið; þau hafa bæði sagt mjer frá því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.