Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Blaðsíða 52

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Blaðsíða 52
46 NÝJAR KVÖLDVÖKUR mjög annríkt, var oft á ferðalögum dög- um saman og þrisvar veit jeg til að hann gisti í Felli, hvaða erindi sem hann hefir átt þangað. Þess í milli sat hann í her- bergi sínu og skrifaði. — Það væri nú vel gert af þjer, Einar, að fylla út í söguna og segja okkur, hvað þú varst að erinda í ferðunum og hvað þú varst að skrifa; jeg er viss um að bæði sýslumanni og hreppstjóra þætti mjög fróðlegt að heyra það«. Einar beit á jaxlinn og þagði. »Er þjer orðið stirt um að tala? Jæja, jeg skal þá halda áfram einn míns liðs. — Þegar leið fram undir vorið, fór Rann- veig í Nesi að verða svo föl og guggin, að móður hennar fór að standa stuggur að útliti hennar og fór með hana til læknis rjett um sumarmálin. úr þeirri för kom móðirin föl, en dóttirin þrútin af gráti; ráðsmaðurinn var lengi á tali við þær mæðgur þetta sama kvöld, — og nú skora jeg á þig, Einar, að segja frá því, sem um var talað og um var samið«. En Einar gat ekkert sagt; röddin gat ekki borið fram þau ofsaorð, sem varirn- ar mynduðu sig til að segja. Sigvaldi leit framan í Einar og sagði ósköp blátt á- fram: »Hvaða ósköp er þjer þungt um andai'- dráttinn, en fyrst þú getur ekki sagt það, þá skal jeg gera það. — Ráðsmaðurinn varð að játa það, að hann væri valdur að lasleika Rannveigar, en það gekk bæði seint og illa, og þegar hann að lokum rauk út frá þeim fokvondur, lá móðirin grát- andi uppi í rúmi, en dóttirin í öngviti á gólfinu. Næsta dag var Þóra rúmföst og var sagt að hún hefði kvefast í ferðinni daginn áður, en svo heyrðist bráðlega, að hún væri alvarlega veik og ekki lifði hún nema viku eftir þetta. Læknirinn taldi sjúkdóminn lungnabólgu og má vel vera að svo hafi verið, enda gekk vond kvef- sótt um það leyti og margir voru rúm- fastir. Ráðsmaðurinn ljet sjer ant um að útförin færi sæmilega fram, en mikið hafði hann að gera það vor, var sjaldan heima og þótti fremur ómjúkur á mann- inn heima fyrir; sjerstaklega kom það fram við þau systkin; hann var kaldur í. viðmóti við þau bæði og stundum sat hann á tali við Rannveigu, en eftir þær viðræð- ur var hún æfinlega grátbólgin. — Gamli Sigurður sýslumaður átti að ráðstafa. dánarbúinu. Tvisvar kom hann að Nesi um vorið, stirður og bólginn af spiki og másandi undir ýstrunni, en annars fór hann að eins og hann var vanur, ljet aðra um störfin og sagði já og amen við öllm Það var ráðsmaðurinn, sem öllu rjeði, og þessir tveir menn, sem settir voru fyrir systkinanna hönd, voru ekki annað en leikbrúður rjett til málamynda, — Hrólf- ur í Höfn og Davíð söðlasmiður hafa aldrei þótt neinir sjerstakir skarpleika- menn, um það getur Guðmundur hrepp- stjóri borið vitni. En niðurstaðan varð sú, að búið í Nesi átti að vera svo illa á veg komið, að eignir voru rjett liðlega fyrir skuldum. öllum aðalskuldunum var svo fyrir komið, að ráðsmaðurinn átti rjettinn til greiðslunnar, og þá lá beinast við að hann keypti jörðina, með húsum, áhöfn og bátum, en af einskærum dreng- skap og göfuglyndi bauðst hann til að greiða hverju systkinanna 1200 kr. út í hönd, svo að þau væru ekki alveg á flæði- skeri stödd; það áskyldi hann þó, að þau færu af heimilinu um vorið. Systkinin gátu ekkert að gert, það var gengið að þessum kostum fyrir þeirra hönd, og sýslumaður úrskurðaði að öll reiknings- skil ráðsmannsins væru óaðfinnanleg. Systkinin fluttust yfir að Hólmum, kirkjustaðnum, þar sem foreldrar þeirra voru grafnir, og ekki höfðu þau annað meðferðis en fötin sín, nokkrar hirslur og ölmusupeninga ráðsmannsins. — Hvað ætli þáð hafi annars verið, sem ráðsmað-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.