Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Qupperneq 32
26
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
flestum þann veg farið, að þeir kjósi
frekar fágran og vandaðan frágang bóka
en ljótan og lélegan.
10. Gwnncvr M. Magnúss: »Fiðrildi«.
Áður en eg ias þessa bók, hafði eg að-
eins séð eina sögu eftir Gunnar M. Magn-
úss. Heitir hún »Sníkjur« og birtist í Ið-
unni. Sú saga þótti mér veigalítil, og
veigalitlar eru þær allar, sögurnar í þess-
ari bók. Víða grípur höfundur á sæmi-
legum söguefnum, en tök hans eru sann-
arleg vetlingatök. Honum tekst hvergi að
sýna lesendunum nokkurn kjarna í mönn-
um þeim, er hann lýsir — og hvergi eru
af list raktir eftirtektarverðir örlagaþætr-
ir. En málið er gott og stíllinn sléttur.
Nokkrar meinlokur mætti benda á, en eigi
er rúm til að tína þær til hér. Verður ekki
spáð neinu góðu um framtíð höfundarins
eftir lestur þessarar bókar, því að í hana
vantar einmitt það, sem mestu varðar,
en það eru skáldleg tilþrif í mannlýsing-
um og efnismeðferð.
Framh.
Höfuðborgir.
16. Kaupmannahöfn.
Kaupmannahöfn, höfuðborg' Danmerkur, er
merkilegri en aðrar höfuðborgir heimsins að því
leyti sem hún í hlutfalli við stærð landsins og
íbúafjölda er öðrum borgum langtum stærri.
Eftir manntali 1921 voru í Kaupmannahöfn
einni saman 561,344 íbúar, en éf Frederiksbergs-
og Gentofte-bæjarfélög eru talin með, verður
talan 700,610. Er þetta meira en einn fimti
hluti af öllum íbúum landsins, og finnast hvergi
slík hlutföll nema í Reykjavík.
Aukningin hefir vei-ið hraðfara: 1801 voru
rúmlega 100,000 íbúar, 1860 rúml. 155,000, en
1895 næstum 334,000.
í Kaupmannahöfn eru nær því 1000 götur,
stræti og vegir og yfir 20,000 hús. Á síðasta
mannsaldri hafa stór svæði verið sameinuð borg-
inni og bygð, og stöðugir flutningar hafa verið
frá einum borgarhlutanum til annars, en hús-
næðisvandræðin, sem verið hafa nú hin síðustu
árin, hafa að miklu leyti tekið fyrir slíka flutn-
inga.
Fyrir utan það, að Kaupmannahöfn er höfuð-
staður landsins og aðsetursstaður konungs og
ríkisstjórnar, er hún á öllum öðrum sviðum
einnig mesta borg ríkisins. Þar er háskólinn —
sá eini í landinu* — listaskólinn, flestar hinar
æðstu mentastofnanii' landsins og öll mestu söfn,
fiesta setulið, sem er í einum bæ, eina flotastöð-
in, sem til er, og' stærsta höfn, enda er þar mið-
stöð allrar verzlunai' og' iðhaðar. Það hefir vei'ið
sagt um Kaupmannahöfn, að hún sje eins og af-
ar stórt höfuð á mjög litlum búk — líkingin er
að vísu ekki fögur, en sönn.
Enda þótt Kaupmannahöfn sje mjög gömul
borg', er ekki hægt að sjá það á útliti hennar.
Frá miðöldunum eru þar mjög litlar menjar
sýnilegar. Aðeins hin gamla kapella við Heil-
agsanda-kirkjuna hefir verið vernduð sem sýn-
ishorn af steinhúsum miðaldanna. Hinir miklu
eldsvoðar, sem geysuðu í borginni árir, 1728 og
1795, og' stórskotahríð Eng'lendinga á borgina
árið 1807 hafa gersamlega eyðilagt hina gömlu
* Sl. haust var háskóli settur á stofn í Árósi
(Aarhus), sem eivönnur stærst borg í Danm.
og höfuðstaðiu' Jótlands.