Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Síða 38
32
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
æpti karlinn. Hvað ætti eg svo sem að
gera við.líkkistu fyrir tíu dali? Dragn-
astu burtu — þú ert arflaus alveg eins og
hann bróðir þinn!
-— Faðir minn, mælti nú yngsti sonur-
inn, mér dettur ekki í hug að vera að
kosta til neinnar kistu handa þér. Eg ætla
að vefja þig inn í gamla dulu og fleygja
líkinu af þér í einhverja afsíðisliggjandi
klettaskoru.
— Það er gott, sonur sæll, sagði faðir-
inn. — En hvers vegna ættir þú nú að
vera að eyðileggja duluna? Nei, ef þú
verulega vilt sýna í verki, að þú sért verð-
ugur til að heita sonur minn, þá átt þú að
höggva skrokkinn á mér í smá bita, búa
til úr honum bjúg-u og selja þau á torg-
inu!
Að svo mæltu hné hann aftur á bak, og
menn ætluðu hann þegar örendan. En er
minst varði raknaði hann þó ofboðlítið
við aftur og hvíslaði:
— En mundu mig um það, að taka ekki
öxina okkar til þess, það slítur alveg úr
henni egginni — fáðu heldur öxina hans
nágranna míns lánaða.
Þar með dó nirfillinn fyrir alvöru.
■■ ■ —-»—o—*•-
Smávegis.
UTAN DAGSKRÁR.
Svo er sagt, að einhverju sinni var
Englandskonungur á ferð og heimsótti
sveitaþorp nokkurt. Dyravörðurinn í húsi
einu, sem konungur kom í, átti tvo páfa-
gauka, var annar þeirra mjög næmur og
lærði fljótt að hafa orð og setningar eft-
ir, sem hafðar voru fyrir honum, en hinn
var nokkuð þverlyndur og tornæmur.
Þegar dyravörður heyrði, að kounugs var
von, kendi hann hinum námfúsa páfa-
gauk sínum að hrópa: »Guð varðveiti
konginn!« Lærði fuglinn það bæði fljótt
og vel.
Um síðir kom hinn eftirþráði dagur og"
hans hátign kom, þótti dyraverði nú
miklu skifta, hvernig gengi, og með fögn-
uði heyrði hann páfagaukinn hrópa:
»Guð varðveiti konginn,« þegar konung-
ur gekk inn. Konungur staðnæmdist og
hló, en hlátur hans óx um allan helming
við að sjá andlitið á dyraverðinum, þegar
hinn páfagaukurinn alveg að óvörum gall
við: »Haltu þér saman, andstygðar asn-
inn þinn!«
777 kaupenda og útsölumanna.
Til mín hafa borist margar umkvartan-
ir frá útsölumpnTmm og kawpendum
»Nýrra Kvöldvalca«, að þá vanti enn
lcaupbæti, sem þeim hafi veri.ð lofað árið
1927.
Eg liefi tilkynt fyrverandi eigendum
ritsins þessar wmkvartanir. Eftirleiðis
óska eg þess, að ef einhverjir liafa enn
vndan þessu sama að kvarta, að þeir
skri.fi mér ekki um það, lieldur einhverj-
um af fyrvera'ndi eigendum, þeim Helga
Björnssyni prentsmiðjueiganda, Hall-
grími Péturssyni bókbindara og Þórhalli
Bjcw'iiarsyni prentsmiðjueiganda.
Ýmsir af kaupendum liafa látið það í
Ijósi við mig, ccð þeim þætti betra að fá
»Nýjar Kvöldvökur« sjaldnar en í mánuði
liverjum, en meira í einu. Nú hefi eg af-
ráðið að gera þær að ársfjórðungsriti. t
þetta slcifti kemur 1.—2. hefti; 3—6. hefti
kemur í maí, 7.—9. hefti í ágúst og 10.—
12. hefti í október.
í næsta hefti verður meðal annars mjög
skemtileg saga eftir innlendan höfuvd,
sem áður er að nokkru kunnur lesendum
»N. Kv.« og hefir hlotið vinsældir þeirra.
Með kveðju til útsölumanna og lcimp-
enda.
Þorsteinn M. Jónsson.