Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Síða 16
Áhöfnin á Geirfugli
GK 66. Fremri röð
frá vinstri: Willard
Olason, stýrimaður,
Jón Guðmundsson,
Sigurgeir Þórir Sig-
urgeirsson, Björgvin
Gunnarsson, skip-
stjóri, Bragi Ingvars-
son og Kristján Finn-
bogason, vélstjóri.
Efri röð: frá vinstri:
Vilhelm Guðmunds-
son, Gísli Kristjáns-
son, Oddgeir Jó-
hannsson, Guðmund-
ur Sigurðsson, Garðar
Ólafsson, Erliard
Jóhannsen og Árni
Þorvaldsson.
Geirfuglinn byrjaði veiðar 8. janúar
með net og þeir hafa veriS á netum
síðan, sagði Björgvin, utan nokkra daga,
sem fóru i botnhreinsun á bátnurn.
Björgvin sagði, að útkoman í marz í
vetur hefði orðið allt önnur en þeir ættu
að venjast, þar sem loðnan hefði ekki
gengiS vestur með, og afli því orðið mjög
lítill á þeim tíma. Hins vegar hefði apríl
verið aðaluppistaðan í þorskveiðinni, en
annars var ufsinn ráðandi í aflanum.
Björgvin sagði, að þeir hefðu byrjað
meS 6 trossur, en síðan hefði þeim farið
fjölgandi og síðustu dagana voru þeir
með 11 trossur. 13 skipverjar hafa ver-
ið á Geirfuglinum að undanförnu, en
venjulega eru þar 12 menn.
Björgvin sagði, að meðaltrossufjöld-
inn í vetur, miðaS viS netafjölda, væri
8 trossur.
Eigendur Geirfugls eru Björgvin skip-
stjóri, Willard Ólason stýrimaður, Krist-
2 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
ján Finnbogason vélstjóri og Dagbjartur
Einarsson, skipstjóri á Drífu RE 10, en
þeir félagar leigja þann bát.
Láta mun nærri aS um 1000—1100
tonn af aflanum sé þorskur og afgang-
urinn aS langmestu leyti ufsi.
Þegar við spurðum Björgvin um afla-
hlutinn, hló hann við og sagði, að þeír
félagar hefSu nú bara ekki haft tíma til
þess aS reikna hann út, þar sem ífram-
kvæmdastjóri væri Dagbjartur skipstjóri
á Drífu, en hins vegar sagði hann, að
kona Dagbjarts hefði séð um það að
borga strákunum það, sem þeir þyrftu,
en uppgjörið yrði aS bíSa vertíSarloka.
Þó taldi hann líklegt, að hluturinn
myndi verða um 250—260 þús. kr.
Björgvin lét vel yfir mannskapnum
og sagði, að mest væru hjá honum sömu
mennirnir ár eftir ár. „Hörkuduglegir
menn og samtaka," sagði hann.
Hann sagði, aS þeir væru allir mjög
ánægðir með útkomuna, en hitt væri
eins ljóst, aS á bak við þennan afla lægi
ótrúlega mikil vinna skipshafnarinnar,
og ef þeir reiknuðu sér á almennu tíma-
kaupi allan þann tíma, sem fariS hefði
í sjósóknina, þætti landmönnum þetta
ugglaust ekki mikið.
„Ég reikna meS því,“ sagði Björgvin
að lokum, „að eftir minnst þriggja vikna
skveringu förum við á síldveiðar fram á
næsta haust, viS erum vanir því.“
SjómannablaSið VÍKINGUR
Eitt útbreiddasta tímarit landsins, flyt-
ur greinar um hagsmunamál sjómanna,
frásagnir af svaðilförum og öðrum at-
burðum. — Frívaktin og Fréttir í stuttu
máli eru fastir þættir í Víkingnum, sem
veita lesendum skemmtun og fróðleik.
Kaupið og lesið VÍKINGINN. Sendið
áskrift í pósthólf 425 eða hringið í 15653.