Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Qupperneq 18
Þeir hlutu heiðursverðlaun Sjómannadagsins. Talið frá vinstri: Steindór Ámason,
Ilaraldur Olafsson, Guðmundur Jensson og Guðmann Hróbjartsson.
Aldraðir sjómenn sýna vinnubrögð við net o. fl.
Guðjón Þráinsson varð hlutskarpastur í stakkasundi.
verðlaun Sjómannadagsins 1969, en þau
hlaut að þessu sinni Örnólfur Grétar
Hálfdánarson frá Súðavík, skipstjóri á
m.b. Svan, ÍS 214, sem sökk í ofviðri
út af VestfjörÖum 29. janúar 1969, en
áhöfnin bjargaðist í gúmmíbjörgunar-
báti.
Þegar Svanur sökk, reið brotsjór yfir
skipið og skellti því á hliðina og rétti
það sig aldrei við aiftur, en sökk eftir
10 mínútur. Gúmmíbjörgunarbáturinn
á stýrishúsinu rifnaði, en skipstjóranum
tókst með frábærum dugnaði að komast
fram á hvalbak og losa vara-gúmmí-
björgunarbátinn. -— Einnig náSi hann
neyðartalstöðinni úr stýrishúsinu við
mjög erfiðar aðstæður.
Það er einróma álit skipshafnar Svans
og allra kunnugra, að Örnólfur Grétar
Hálfdánarson hafi með dugnaði sínum
og stjórnsemi, fyrirhyggju og ábyrgðar-
tilfinningu, tvímælalaust bjargað allri
áhöfninni.
Afreksbjörgunarverðlaunin, sem var
fagur sil'furbikar, var gefinn af Félagi
íslenzkra botnvörpuskipaeigenda.
Þegar afhendingunni var lokið söng
drengjakór St. James-kirkjunnar í Grims-
by nokkur lög.
Að þessu loknu hófst sameiginleg dag-
skrá Sjómannadagsins og Sundnefndar
K.R.. Keppt var í stakkasundi, björgun-
arsundi og sundgreinum K.R. með þátt-
töku finnskra og íslenzkra sundmanna.
Þá sýndu vistmenn frá Hrafnistu hag-
nýt vinnubrögS og reiptog fór fram milli
sveita Glímufélagsins Ármanns og sveit-
ar Sundfélagsins Ægis. Sveit Ármanns
sigraði.
1 björgunarsundi voru 2 þátttakendur,
þeir Kristinn Ingólfsson, m.s. Þorkeli
mána, sem sigraði og hlaut Björgunar-
sundsbikarinn, og Þorsteinn Geirharðs-
son ,m.s. Gullfossi.
1 stakkasundi kepptu þeir Guðjón
Þórarinsson, m.s. Sigurbjörgu, og bar
hann sigur úr býtum og hlaut Stakka-
sundbikarinn; Ásgeir Sigurðsson, m.s.
Gísla Johnsen; Þorsteinn GeirharÖsson,
m.s. Gullfossi; Egill Sveinbjörnsson,
m.s. Sæörinni; Filip Woolford, m.s. Is-
borgu, og Þórður Kristjánsson, m.s.
Gísla J. Johnsen.
Sjómannadagsbóf var um kvöldið að
4 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ