Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Side 29
aflinn varð þá aðeins minni, eða um 52
millj. tonn og 102.000 laxar á bát. A
síðasta ári (1969) voru móðurskipin 11
með 367 fiskibáta, en tölur liggja ekki
fyrir um aflann.
Hvar átti svo þessi lax heimkynni?
Vísindalegar rannsóknir leiddu í ljós,
að rnikið af honum kom úr amerískum
og kanadískum ám, en einnig að veru-
legur hluti unglaxins, sem eyðir æsku
sinni við Aleutian-eyjarnar, var af rúss-
neskum uppruna, úr ánum í Síberíu,
en því höfðu menn ekki gert sér grein
fyrir áður. Það kom einnig í ljós, að lax-
inn er mikill „ferðalangur", t. d. má
nefna, að kóngalax (King Salrnon), sem
merktur var úti fyrir eyjunni Adak í
Aleutian-klasanum, var veiddur á stöng
í Salmon River í Idaho-fylki í júnímán-
uði árið eftir. En styzta leið milli þess-
ara staða er um 3200 sjómílur.
Japanir notuðu fram eftir öllu mjög
smáriðin net, sem kom hart niður á ung-
fiskinum, einkum hinum verðmæta
rauðlaxi eða Sockey, en hafa síðar við-
urkennt, að slíkt var ekki skynsamleg
vprzlunaraðferð að drepa ungviðið áður
en það færi að auka kyn sitt, og hafa
gengizt inn á að auka möskvastærðina.
Ennfremur er japönskum netaveiðiskip-
um bannað að stunda veiðar austan við
175. gr. vestur lengdar. Bandarískum
og kanadískum fiskimönnum eru bann-
aðar laxveiðar á sama svæði allt til
strandar, nema með stangaveiði, og hún
fer helzt fram uppi við strandlengjuna,
þannig að sá lax, sem kemst inn á þetta
svæði, kemst að mestu óhultur í árnar.
□ □
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 15
Japanskt móðurskip — fljótandi niðursuðuverksmiðja. Hvert verksmiðjuskip hefur milli
32—35 netabáta til hráefnisöflunar.
Laxveiði í úthöfum
Laxveiði í úthöfum er nú mikið hita-
mál milli þeirra þjóða, er þær stunda og
hinna, sem vilja nýta laxinn í heimaám
sínum, og telja hættu á að úthafsveið-
arnar eyðileggi laxastofnana.
Japanir hófu þessar veiðar með net-
um úti fyrir ströndum Kanada fyrir
rúmum 40 árum. — Þær vöktu strax
gremju laxveiðimanna og framleiðenda
á niðursoðnum laxi þar í landi. En það
var ekki fyrr en 1937, að Cordell Hull
tókst að ná samkomulagi við Japans-
stjórn, að veiðar þessar yrðu bannaðar
þar úti fyrir ströndum. Síðan kom styrj-
öldin, og Japanir höfðu öðru að sinna
en laxveiðum.
En skömmu eftir styrjöldina hófu þeir
þessar veiðar að nýju, en þá með marg-
falt meiri tækni. Árið 1952 höfðu þeir
3 móðurskip með 57 veiðibátum, sem
samtals veiddu rúmar 2 millj. tonna af
laxi, eða um 37.000 laxa á hvern bát.
Þremur árum síðar (1955) voru móður-
skipin orðin 12 með 342 fiskibáta, og
heildaraflinn hafði aukizt upp í rúmar
64 millj. tonna, eða um 157.000 laxar
á hvern 'fiskibát! Árið 1956 voru móður-
skipin orðin 16 með 506 fiskibáta, en
Laxanetin dregin. Aðeins steinateinninn er látinn á spil, en netið handdregið.
Auðvitað sá ég merkið — mistökin voru,
að ég sá yður ekki.