Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Blaðsíða 33
Salóme, kona mín, er fóstruð upp í
Ögri hjá Þuríði konu Jakobs í Ógri. Það
var mikil reisn yfir Ógri á dögum Jakobs,
þó að það væri nú reyndar fyrir mína
tíð. Ég hafði aðeins af því glöggar spurn-
ir þeirra, sem vel þekktu til í Ögri um
aldamótin.
Þá var þar aldrei 'færra en 30 í heim-
ili, 12—14 vinnumenn og 12 vinnu-
konur, auk róðrarmanna, sem oft voru
margir, því að Jakob hafði jafnan skip
fyrir landi, stundum mörg. Ögur átti þá
jarðirnar Garðstaði, Strandsel, Skarð í
Skötufirði og Hjalla og part í Bæjum,
hálfan Neðri-Bakka í Langadal, hálft
Laugaból í Laugadal og Smiðjuvík alla
á Ströndum. — Ögurkirkja var bænda-
kirkja allt frá tímum Björns ríka í Ögri,
og átti hún auk þess, sem talið hefur
verið, uppsátur í Bolungavík. Það kann
að vera, að Ögurbúið hafi átt fleiri ítök
við Djúp, þó að mér sé það ekki kunn-
ugt.
Jakob var síðasti ábúandinn í Ögri,
sem sat í öllu þessu ríkidæmi, því eftir
hans daga tóku tímar að breytast og
jarðir að ganga undan Ögri. Nú eru
þær allar seldar og stóra húsið, sem
Jakob lét reisa, kjallari, tvær hæðir og
stórt ris, stendur nú nálega yfirgefið.
þar sem áður voru margir bátar fyrir
landi, heimili fjölmennt og mikil önn
til lands og sjávar, er nú engin fleyta,
og engin styggð kemur að sjófuglinum
við flæðarmálið í lygnunni innan hólm-
anna.
Já, Jakob í Ögri var mikill fyrir sér
og honum græddist fé mikið, þó að
hann drykki ótæpilega og sæist þá stund-
um lítt fyrir. Rausnin var rnikil líka hjá
þeim hjónum við fátæka, sendur matur
á bæina, en það mátti ekki vitnast.
Já, víst hefur rnargt breytzt. Þegar
ég keypti skektuna mína 1917, kostaði
hún 700 krónur og Hermóður, sem var
3 tonn og smíðaður af Jakobi og Sig-
mundi Falssonum (Falur, faðir þeirra
var veikur), kostaði með öllum 'farviðum
og veiðarfærum 2700 krónur. Þá var
krónan króna.
Ég hef verið farsæll, gigtin er það
eina, sem hefur þjáð mig um dagana -—
Flöskupósfur
Hermaður, sem sennilega hefur
þjáðst af heimþrá, kastaði út
flöskupósti einhvern tíma á ár-
inu 1916 frá herflutningaskipi,
úti fyrir ströndum Ástralíu. —
í marzmánuði sl. fannst flaskan
— og bréfið, sem er vel varð-
veitt. Það var áströlsk Stúlka,
Lynda Harald, sem fann bréfið,
og sést hér á myndinni með
flöskuna og bréfið.
og það var nú svo sem nokkuð, þvílíkar
kvalir sem fylgdu henni, ég hef varla
skorið mig í fingur — utan einu sinni,
ég sneið af hnúana á annarri hendinni,
lét rjól við og batt um og það greri, mér
greru skurfur einstaklega vel — blóðið
hefur verið gott; svo sleit ég í mér taug,
það var eftir að ég kom til ísafjarðar,
ég var að kasta upp úr trillunni minni,
og var að 'fleygja stórri löngu upp á
bryggjuna, en hún sat föst í goggnum
og það kom svona óhnögglegur rykkur
á hendina, að taugin slitnaði og hnýtti,
og ég hef aldrei náð fullu afli í hendina
síðan, hún er hálf máttlaus, en dugar
mér það sem eftir er ...
Já, ég vinn fulla vinnu frá sjö til sjö,
ef því er að skipta, sýnist þér ég kannski
vera kominn að fótum fram? ...
Nei, ég hef aldrei verið lífhræddur,
ég hef alltaf gert mér Ijóst, að dauðinn
yrði ekki umflúinn, en það náttúrlega
hvarflaði stundum að manni, hvernig
fjölskyldunni reiddi af, þegar maður var
að þvælast einn á báti í Djúpinu ...
... Og barnalán hef ég haft einstakt
— ellefu börn, öll á lífi og öll vel gift,
og eiga öll orðið böm — blóðið er gott.
Hermann Hermannsson eignaðist
fyrst skektu 1917, sem bar nafnið „Sæ-
unn", þar næst sexmannafar 1919, sem
hét „Óli Snarfari". 1931 keypti hann
vélbátinn „Hermóð", sem hér birtist
mynd af, bar sem hann stendur á kamb-
inum í Ögurvík.
Þróunin í skipaeign sona hans hefur
orðið ör. Arið 1960 eignaðist Gunnar
m.s. „Eldborg", 139 smál. skip. Árið
1963 eignast Gísli Jón m.s. ,,Vigra“ og
Þórður eignast m.s. „Ógra“, 200 smál.
skip. Árið 1964 eignast Gunnar m.s.
„Eldborg 2“, 200 srnál. skip, og árið
1967 eignast Gunnar m.s. „Eldborg 3“,
560 smál. skip, byggt á Akureyri.
Vélskipin „Ögri“ og „Vigri" voru á
síðastliðnu ári seld til Afríku, en í stað
þeirra eru ráðin kaup á tveimur skut-
togurum af nýjustu gerð, um 1000 smál.
að stærð hvor þeirra, sem Vigri h.f. og
Ógri h.f. standa fyrir.
Þess ber að geta, að aðaleigandi með
Gunnari í Eldborg h.f. er Þórður Helga-
son vélstjóri. — I Vigra h.f. með Gísla
Jóni er meðeigandi Pétur B. Gunnars-
son vélstjóri, og í Ögra h.f. með Þórði
er meðeigandi Halldór Þorbergsson vél-
stjóri.
Börn Hermanns og konu hans, Sal-
ome Gunnarsdóttur, önnur en að fram-
an greinir, eru: Anna, húsfreyja á Isa-
'firði, Þuríður, húsfreyja á Húsavík, Sig-
ríður, húsfreyja í Reykjavík, Karítas,
húsfreyja á Llúsavík, Sverrir, formaður
Landssambands ísl. verzlunarmanna í
Reykjavik, og Guðrún Dóra, húsfreyja
í Reykjavík.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 19