Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Qupperneq 28
getur valdið miklum erfiðleikum að fá
nógu öfluga dráttarbáta eða önnur skip
til aðstoðar við supertankskip, sem orðið
hefur fyrir sjótjóni. Þá er mjög líklegt
að miklum vandkvæðum geti verið
bundið að fá nógu öfluga viðgerðarstöð
nokkurs staðar nálægt, og loks verður
vátryggjandinn að gera sér grein fvrir
hvílík óhemju verðmæti liggja í sjálfum
farmi skipsins ef þannig stendur á.
Þegar fyrstu risaskipin fóru að sigla,
var að nokkru um ágiskanir að ræða í
vátryggingariðgjöldum, þar sem um al-
gjört nýmæli var að ræða. En gert er
ráð fyrir því, að tryggingarfélög um all-
an heim taki þessi mál nú til endurskoð-
unar og verulegrar hækkunar iðgjalda,
með hliðsjón af þeim sjótjónum, sem
urðu á 'fimm risaskipum í lok síðasta árs.
1 október sökk sænska skipið „Seven
Skies“, 97.500 tonn, skammt frá Singa-
pore.
í nóvember sökk norska skipið ,,Silja“,
101.000 tonn, úti fyrir Marseille.
í desember sökk brezka risatankskip-
ið „Marpessa", 207.000 Dw., eftir að
sprenging hafði orðið í skipinu úti fyrir
V.-Afríku, þar sem það var statt í jóm-
frúferð sinni.
í desember urðu einnig eldsupptök
eftir sprengingar í tveimur risaskipum
úti f)trir ströndum Afríku. Það var Shell-
skipið „Mactra“, 208.000 Dw. (systur-
skip „Marpessa", bæði byggð í Japan),
og í norska skipinu „Kong ffákon 7“,
220.000 Dw.
Oll þessi sjótjón vöktu heimsathygli,
og víðtækar rannsóknir látnar fara fram
til þess að finna orsakir þeirra. Því það
eru engar smáupphæðir sem hér er um
að ræða. Ef reiknað er með að 200.000
tonna risatankskip kosti 1.2 milljarða ísl.
króna, og það sé vátryggt fyrir þeirri
upphæð, eru ársiðgjöldin af því 4—5%
eða um 60 millj. króna. Og þó reiknað
með eigin ábyrgð í allt að 15 millj kr.
Hressileg tryggingariðgjöld
Það þótti mikil'fenglegt þegar Japanir
fóru að byggja 100.000 tonna tankskip,
og síðan áframhaldandi að stækka þessi
superskip upp í allt að 500.000 tonn.
En ennþá er ekki látið staðar numið.
— Evrópskar skipabyggingastöðvar hafa
einnig farið inn á þá braut að byggja
risaskip í samkeppni við Japani, þó að
þeir séu enn fremstir á þessu sviði, þar
sem þeir eru nú að hefja smíði tveggja
skipa, sem hvort um sig verður ein
milljón tonn að stærð.
En það eru mörg ný viðhorf fleiri, en
tæknilega hliðin á byggingu þeirra, sem
skapast við tilkomu þessara risaskipa.
Eitt er það sem snýr að vátryggingu
þeirra. Af ýmsum ástæðum skapast ný
áhætta fyrir vátryggingarfélögin. Ekki
þannig að sigling þessara risaskipa sé
áhættumeiri en annarra skipa. En það
200.030 tonna risatankskipið „Marissa“ á siglingu fyrir „Cape of good hope“ — fær póst
og birgðir fluttar um borð með þyrlu.
14 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ