Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Side 18

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Side 18
Þeir hlutu heiðursverðlaun Sjómannadagsins. Talið frá vinstri: Steindór Ámason, Ilaraldur Olafsson, Guðmundur Jensson og Guðmann Hróbjartsson. Aldraðir sjómenn sýna vinnubrögð við net o. fl. Guðjón Þráinsson varð hlutskarpastur í stakkasundi. verðlaun Sjómannadagsins 1969, en þau hlaut að þessu sinni Örnólfur Grétar Hálfdánarson frá Súðavík, skipstjóri á m.b. Svan, ÍS 214, sem sökk í ofviðri út af VestfjörÖum 29. janúar 1969, en áhöfnin bjargaðist í gúmmíbjörgunar- báti. Þegar Svanur sökk, reið brotsjór yfir skipið og skellti því á hliðina og rétti það sig aldrei við aiftur, en sökk eftir 10 mínútur. Gúmmíbjörgunarbáturinn á stýrishúsinu rifnaði, en skipstjóranum tókst með frábærum dugnaði að komast fram á hvalbak og losa vara-gúmmí- björgunarbátinn. -— Einnig náSi hann neyðartalstöðinni úr stýrishúsinu við mjög erfiðar aðstæður. Það er einróma álit skipshafnar Svans og allra kunnugra, að Örnólfur Grétar Hálfdánarson hafi með dugnaði sínum og stjórnsemi, fyrirhyggju og ábyrgðar- tilfinningu, tvímælalaust bjargað allri áhöfninni. Afreksbjörgunarverðlaunin, sem var fagur sil'furbikar, var gefinn af Félagi íslenzkra botnvörpuskipaeigenda. Þegar afhendingunni var lokið söng drengjakór St. James-kirkjunnar í Grims- by nokkur lög. Að þessu loknu hófst sameiginleg dag- skrá Sjómannadagsins og Sundnefndar K.R.. Keppt var í stakkasundi, björgun- arsundi og sundgreinum K.R. með þátt- töku finnskra og íslenzkra sundmanna. Þá sýndu vistmenn frá Hrafnistu hag- nýt vinnubrögS og reiptog fór fram milli sveita Glímufélagsins Ármanns og sveit- ar Sundfélagsins Ægis. Sveit Ármanns sigraði. 1 björgunarsundi voru 2 þátttakendur, þeir Kristinn Ingólfsson, m.s. Þorkeli mána, sem sigraði og hlaut Björgunar- sundsbikarinn, og Þorsteinn Geirharðs- son ,m.s. Gullfossi. 1 stakkasundi kepptu þeir Guðjón Þórarinsson, m.s. Sigurbjörgu, og bar hann sigur úr býtum og hlaut Stakka- sundbikarinn; Ásgeir Sigurðsson, m.s. Gísla Johnsen; Þorsteinn GeirharÖsson, m.s. Gullfossi; Egill Sveinbjörnsson, m.s. Sæörinni; Filip Woolford, m.s. Is- borgu, og Þórður Kristjánsson, m.s. Gísla J. Johnsen. Sjómannadagsbóf var um kvöldið að 4 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.