Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Blaðsíða 24

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Blaðsíða 24
Þessu skipsflaki hafa Síafnessjóarnir hent langt upp á land. Það er miklu oftar, sem þeir mylja skipin ofan í hyldýpisgjárnar innan við skerin. Þeir skipstjórarnir höfðu lagt frá Reykjavík kl. 2,30 um nótt- ina í bifreið og gátu skrönglast á henni til Fuglavíkur, miðja vegu milli Sandgerðis og Hvalsness. Þar urðu þeir að fá hesta það sem eftir var leiðarinnar. Ekki var vegurinn skáná en það, að þeir komust rétt fet fyrir fet, og voru þeir liálfan annan tíma á leiðinni þaðan og suður á Stafnes, sem nú er hægt að skjótast á nokkrum míni'ú'.im. Að Stafnesi komu þeir klukkan rúmlega sjö um morgun'nn. Það var ömurleg sjón, sem þarna blasti við komumönnum. Tekið var að biría og vel sást hvar skipið lá í brimgarðinum. Með aðfallinu liafði brimið aukizt um allan helming. Þótt enn væri ekki komið háflóð stóð lítið upp úr af skipinu nema frammastrið og dálítið af stjórnpallinum og hvalbaknum og hálfur skorsteinn- inn, en eftir því sem nálgaðist háflóð hvarf þetta í verstu brot- unum. Strandaða skipið lá þannig, að stafn vissi að landi móti vitanum, skipið liallaðist frá landi á bakborðsbóg og skuturinn snéri beint í brotm, sem riðu með jöfnu millibili fram eftir skipinu. Var öll aðstaðan þannig, að fæstir sem á horfðu gátu vænzt þess að neinum yrði bjargað. Um klukkan 10 reið mikill sjór yfir, sem tók skorsteininn í heilu Iagi og braut það af tréverki, sem eftir var ofan á stýrishúsinu. Það mun og hafa skolað burtu síðustu möimunum, sem eftir voru á stjórnpallinum. Margir af þeim, sem þar drukknuðu fundust á reki í björgunarbeltum af bátunum fyrir utan og var líkunum safnað yfir í togarann Tryggva gamla, þar sem þau voru lögð hlið við lilið á þilfarið. Enn voru margir menn sjáanlegir í reiðanum í formastrinu. Ef ætti að takast að bjarga þeim, myndi það helzt vera á útfallinu eða um liggjandann, ef nokkur maður yrði þá eftir. I þeirri von var farið að safna saman köðlum og lóðabelgjum og útbúa áttæringinn, sem staðið hafði uppi í Skiphólma og koma Hvalsneskirkja, þar sem Hallgrímur Pétursson hóf prestskap sárri fátækt, er skammt norðan Stafness. Þar var fyrrum mikil verstöð. Greinarhöfundur lítur norður yfir Skiphólinn — til vitans og Stafnesbæja. honum fyrir á lóninu, sem gekk norður úr Álsundinu milli lands og Stafnesrifs. Jón forseti, sem hafði strandað þegar lágt var í sjó og enn út- fall, færðist á flóðinu lengra inn á flúðirnar þar sem brotin voru einna mest, og þar hafði skipið að lokum skorðast milli klappa, sem komu upp úr sjó við bakborðsbóginn á fjörunni í útsoginu. Fyrú innan var Iónið hyldjúpt. Þar var talsverð ylgja, en brot- sjóar náðu ekki nema skammt inn á lónið. Eins og áður er sagt lá enginn sími að Stafnesi. Við Sandgerði hafði ekki náðst símasamband fyrr en um morguninn. Slysavarna- félag íslands var þá alveg nýstofnað, eða fyrir réttum mánuði. Það átti þá ekki nein björgunartæki. Erindreka félagsins, Jóni E. Bergsveinssyni, hafði heldur ekki verið gert aðvart. Strax og hann frétti þetta um morguninn, fékk hann því framgengt við Lands- símastjóra, Gísla Ólafsson, að símastöðin í Sandgerði yrði höfð opin allan tímann meðan björgunarstarfið stæði yfir. Gerðist hann síðan milligöngumaður um að útvega fréttir handa hinum óttaslegnu aðsíandendum og öðrum, er biðu milli vonar og ótta og leituðu til Slysavarnafélags íslands í örvæntingu sinni. Þannig hófst hin nána samvinna Slysavamafélagsins við fólkið í landinu, þegar menn voru í hættu eða þegar voði steðjaði að, hið nána samband við almenning, sem síðan hefur ekki rofnað. Eftir þennan hörmulega atburð, gekkst Slysavarnafélagið fyrir því, að lagður var akfær vegur frá Sandgerði út á Stafnes og einnig sími, sein Slysavarnafélagið hefur kostað fram á þennan dag. En í Sandgerði reisti svo félagið fyrstu björgunarstöð sína, með mjög góðum útbúnaði. I Sandgerði var svo stofnuð fyrsta deildin í Slysavarnafélagi Islands. Þarna í nágrenninu hefur Slysavarnafélag Islands síðan átt margar sínar styrkustu stoðir. Einn af þeim mönnum, sem lengst hefur verið björgunarfulltnii Slysavarnafélagsins á þess- um slóðum og er það reyndar enn, er Jóhannes Jónsson, hinn kunni útvegsbóndi á Gauksstöðum í Garði. Þegar „Forsetinn" strandaði var Jóhannes formaður á bát í Sandgerði. Hann frétti ekki um slysið fyrr en komið var undir hádegi. Segist hann þá hafa lagt af stað gangandi suður á Staf- nes ásamt Jóni Jóhannssyni, sem réri með honum og Stefáni bróður hans, er voru mannskapsmenn á bezta aldri. Segjast þeir hafa lagt af stað ótilkvaddir og án þess að vita hvemig málum var háttað á strandstaðnum. Þegar þeir komu út á Stafnes var komið talsvert fram yfir há- degi og mikið fallið út. Náðu brotin því ekki eins til mannanna, sem enn héngu í reiðanum og mátti telja þar 13 menn, sem eftir vom af 25 manna áhöfn. Engin tök virtust vera að þeim yrði bjargað af skipunum fyrir utan, því svo langt braut út frá flak- inu, og ekki virtust heldur miklir möguleikar að bjarga þeim frá landi. 10 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.