Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Blaðsíða 31

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Blaðsíða 31
Þórður Hermannsson, skipstj. á Ögra. Gísli Jón Hermannsson. skipstj. á Vigra. Gunnar Hermannsson. skipstj. á Eldborgu. Halldór Hermannsson, skipstj. á Þristi ÍS. Birgir Hermannsson, skipstj. á vegum SÞ á Jamaica. ar ég fékk gigtina og læknirinn sagði mér að liggja, að ég sagðist skyldi gera það um jólin, annan tíma mætti ég ekki missa ... ... Já, ég þjáðist lengi af iskís — þrýstingur á afltaugina — ég mátti þola þetta í ein tuttugu og fimm ár — mis- munandi mikið auðvitað, en ég var oft kvalinn af þessum sjúkdómi. ... Þegar ég var sem verstur, varð ég að vekja kon- una, þegar ég fór til róðra og fá hana til að hjálpa mér að klæðast — ég gat ekki beygt mig á'fram, og þegar ég tók eitthvað upp á þessum árum, sem ég þurfti vitaskuld að gera meira eða minna daglega, þegar allt var nú borið á sjálf- um sér, þá varð ég að beygja mig í hnjánum, aftur á móti var ég nokkuð góður, þegar ég var kominn í róðrar- stellingarnar — því að ekki dugði að slá slöku við sjósóknina. Ég man ennþá þann dag, þó að langt sé nú umliðið, þegar ég fékk þessar kvalir fyrst. Ég var þá að koma úr róðri, og allt í einu var eins og rekinn væri í mig hnífur — ég varð alveg ósjálfbjarga í bátnum og lá þannig á leiðinni í land, en bráði svo af mér að ég gat farið að staulast þegar að landi var komið. Ég losnaði ekki að fullu við þessar gigtar- eða iskískvalir fyrr en síðustu tennurnar voru dregnar úr mér. Ég lét þá taka úr mér ellefu beyglur ódeyft, því að ég var þá stundina kvalinn af gigtinni og sagði við lækninn, að mér hlytu að hverfa gigtarkvalirnar meðan verið væri að draga úr mér. Það varð orð og að sönnu, því að ég hef ekki fundið til þeirra síðan — ég veit ekkert af hverju þetta stafaði, en svona var það. — Það er einkennilegt þú skulir hafa heyrt söguna um trefilinn, ég hef engum sagt hana, svo ég muni, en auðvitað vissu þeir, sem voru með mér um borð, af þessu, þeir hafa kannski sagt frá því. ... Ég var sæmilega hraustur — skrokksterkur, held ég. Þetta var þannig, að ég var með langan og mikinn ullar- trefil, og þegar ég beygði mig yfir vél- ina, náði öxullinn í trefilkögrið og vatt vitaskuld treflinum strax upp á sig. Ég skaut höndunum snöggt fyrir mig, þeg- ar trefillinn kippti mér áfram og kom bolmagninu við og trefillinn slitnaði — jú, það er ekkert vafamál að ég átti kröft- unum líf mitt að launa þarna, því að ég hefði að líkindum rotazt, þegar ég hefði skollið yfir í súðina, og síðan örugglega hengzt, því að ég hefði engum vörnum komið við, eftir að ég var kominn flatur niður að öxlinum. En lengi var ég eftir mig í hálsinum, og konunni varð svo mikið um þetta, þegar hún sá trefilinn og vissi um orsakirnar, að hún prjónaði mér aldrei lengri trefil en svo, að ég rétt gæti vafið honum um hálsinn. Hún Eldborg GK 13. Eldborg GK 13. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 1 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.